Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

More power to you.

Gangi ykkur vel, þið sem standið upp gegn órétti og valdníðslu.
Baráttukveðja að sunnan. Við hugsum til ykkar.
mbl.is Mótmæli á Ráðhústorgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann endar á stuttbuxunum ef hann heldur þessu áfram.


Ég er ansi hræddur um að þetta sé bara byrjunin á vandræðum Geir H Hor D ef hann heldur þessu áfram. En mér sýnist hann njóta þess smávegis að vera umsetinn, mögulega er konan eitthvað að svelta hann heima. En það er annað mál. Við viljum kjósa og við viljum alla þessa ofvöxnu krakka burt.
Hvað er svona flókið við að setja kosningadag. Það á ekki að vera vandamál fyrir þá sem elska framgang lýðræðis. En fyrir þá sem elska völd er það stórmál og algjört ábyrgðarleysi. Allt fer í vaskinn ef ég hverf af sjónarsviðinu ! hvílíkt jók.
mbl.is Ekki á kosningabuxunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mig er búið að dreyma um að gera þetta.

En ég vildi allavegana leyfa börnunum að gleðjast.
Fyrir jól kom upp svo mikil reiði í mig að mig langaði að brenna þetta jólatré þar sem mér fannst varla ástæða til að vera að gleðjast yfir neinu nema fæðingu frelsaranns. Og yfir landinu grúfði þungur óleystur pólitýskur vandi. Stjórn sem stendur í andstöðu við þjóð sína.
Það er svo spurning hvað Jesú hefði gert. Hann talaði aldrey um nein Jólatré. En verslunarmenn og vestrænt samfélag hefur nánast tínt Jesú í öllu glingrinu.
Mitt atkvæiði liggur því andlega og veraldlega með bruna jólatrésinns.
He he he frábært.

mbl.is Óslóartréð borið á bálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gékk ríkisstjórn of langt ?


Það er oft spurt hvort að mótmælendur hafi gengið of langt í að mótmæla. Áttu þetta ekki að vera friðsöm mótmæli, segja sumir. Við viljum ekki skrílslæti og ofbeldi.
Svo gengur lögregla of langt við að gæta þess að mótmælendur gangi ekki of langt.
En allt þetta er afleiðing af því að eðlilegum kröfum er ekki fullnægt.
Ríkisstjórn gengur of langt með því að gefa ekki út kosningadag.Og núverandi ríkisstjórn Íslands gengur allt of langt í því að halda í stjórnartaumana.
Er erfitt að verða að ósk fólksinns í landinu um lýðræðislegar kosningar . Eftir að stefna ríkisstjórnar veldur efnahagshruni ? Er það eitthvað sem ríkisstjórn þarf að sannfæra borgarana um að sé ekki þeim fyrir bestu ?

Það er ekki eðlilegt að ríkisstjórn sitji áfram og það er ekki eðlilegt að Samspillingin stiðji Sjálfræningjaflokkinn til þess að halda völdum.
Tveir af ráðherrum ríkisstjórnar hafa gefið út þær yfirlýsingar að það beri að boða til kosninga. Þingmenn úr báðum stjórnarflokkum hafa lýst vilja til þess að boða til kosninga.
Það virðist vera að evrópupæling Ingibjargar sé límið sem heldur þessum tvíhöfða búk saman.
Hún gerir sér vonir um að það sé best að hefja aðildarviðræður og hún geti leitt þær viðræður.
Nú er Ingibjörg á sjúkrahúsi og ég vona að hún nái sér fljótt en skilji eftir hrokan við rúmstokkinn þegar hún fer með morgunbænirnar.
Við viljum kjósa. Og ef ríkisstjórn bæri hag þjóðarinnar fyrir brjósti en ekki flokksins síns mundi ríkisstjórn ekki hika við að boða til kosninga.


mbl.is Beittu kylfum á mótmælendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vírusar hagkerfis.

Nú fer allt að koma í ljós.

Einkareknir bankar sem hafa það eitt að markmiði að skila hagnaði á kostnað almennings. Eru vírusar hagkerfa.

Það er einfaldlega þannig að Íslendingar eru að komast að því hvernig bankarnir rændu landinu, og murka lífið úr skuldaranum með hjálp seðlabanka og fjármálaeftirlits. Og nú kemur byltingin. Leggjum Glitni og Kaupþing niður. Og kauphöllina. Og opnum Borgarabankann með hjálp lífeyrissjóðanna og förum að lána okkur sjálfum. Ekkert vesen. Engir fjármagnseigendur sem fá að mjólka okkur lengur og við verðum frjáls og mótum okkar peningamálastefnu sjálf. Stjórnmálamenn hafa fengið sitt tækifæri.

Horfið á allan þennan stutta þátt og fáið innri skilnig í banka viðskipti og jöklabréf. 

 

  


mbl.is Hundruð milljarða millifærðir á reikninga erlendra félaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heiti grauturinn.


Ég er nú nokkuð ánægður með Sigmund og ég er viss um að hann mun allavegana ekki nota ESB sem bleyju eins og sumir stjórnmálamenn. En það er fyndið hvernig formenn þurfa að forðast að taka aftöðu um viss málefni og forðast sannfæringu sína eins og kettir í kringum heitan graut, til þess að splundra ekki flokkunum. Og svo eru atkvæðaveiðarnar alveg mannskemmandi. Þá fer samviskan á uppboð.
En ég óska þér Sigmundur góðs gengis og ég vona að flokkurinn ykkar umbyltist eins og allt samfélagið.
Ég er ekki frá því að það væri góð byrjun að tala um og játa mistök fyrir rennara og hvernig þið viltust svona af leið.
Var það spilling , var það eigingirni, var það ótti var það vegna græðgi, eða bara hagfræðilegri heimsku. Eða vegna þess að þið gerðuð allt til að vera við völd, eins og samspillingin núna.Ég er bara að velta þessu upp, ekki móðga neinn.

mbl.is Vill færa flokkinn frá hægri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er að leyta að þolinmóðum fjárfesti.


Ég er með frábæra viðskiptahugmynd í ferðamannabransanum.
Þeir sem hafa til umráða 15-20 miljónir og vilja fjárfesta í nýju spennandi gjaldeyrisaflandi litlu fyrirtæki hafið samband. Enga okurvaxta samninga takk fyrir. Helmingur fyrirtækisinns í boði ásamt þáttöku í rekstri ef óskað er eftir. Frábær og mjög spennandi hugmynd með lítilli yfirbyggingu og rekstrarkostnaði.
Ég svara aðeins alvarlegum fjárfestum eða samstarfsaðila.
mbl.is Ísland eitt það heitasta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krónan felld á almenning.

Ef einhver er í vafa um sök bankana og hvernig jöklabréfin hafa áhrif á almenning. þá gjörið svo vel að horfa á þessi myndbönd. Ég mæli eindregið með allri seríunni. Hana er hægt að finna á youtube.com

Bankar voru algjörlega vitfyrtir í tillitsleysi sínu og ábyrgðarleysi gagnvart almenningi. Grátlega fyndið. En graf alvarlegt og sýnir vel hugarfar sumra bankamanna. Sem enn eru að tala máli bankana.

Ef einhver vill færa rök fyrir því að það sé almenningi að kenna að þeir hafi eitt um efni fram, þá gjörið svo vel að horfa á þetta.

 

Þessi texti er tekinn af vísindavef HÍ 

 Það kann mörgum að þykja skrýtið að gefa út skuldabréf í einni mynt til þess eins að breyta því í lán í annarri mynt en það getur verið hagkvæmt. Skýringuna má þá í grundvallaratriðum rekja til þess að útgefendum skuldabréfa bjóðast misgóð lánskjör eftir myntum og löndum. Þannig gæti útgefandi jöklabréfs verið talinn það góður lántakandi að hann gæti selt slík bréf með lægri vöxtum en íslenskur banki, jafnvel með lægri vöxtum en íslenska ríkið þarf að bjóða á skuldabréfum í krónum. Það er því eitthvert svigrúm fyrir erlenda útgefanda jöklabréfs til að taka lán í krónum og lána féð aftur með aðeins hærri vöxtum til íslensks banka. Íslenski bankinn getur síðan ávaxtað krónurnar með ýmsum hætti, til dæmis keypt íslensk ríkisskuldabréf eða lánað til innlendra aðila.


Erlendur aðili sem kaupir jöklabréf nýtur þess að fá greidda háa vexti, vegna þess hve hátt vaxtastig er á Íslandi. Á móti ber hann hins vegar gengisáhættu. Falli krónan þá tapar hann en styrkist krónan þá hagnast hann. Það sama ætti við ef hann keypti skuldabréf í krónum sem gefið væri út af íslenskum aðila. Þegar aðili tekur lán í mynt með lágum vöxtum, til dæmis japönskum jenum, og kaupir skuldabréf í mynt með háum vöxtum, til dæmis íslenskum krónum, og veðjar þannig á vaxtamun er það kallað á ensku 'carry-trade'. Það hefur verið þýtt á íslensku sem vaxtamunarviðskipti, sem gjarnan mætti finna liprara orð yfir!

Jöklabréfaútgáfan hefur sem fyrr segir verið mjög lífleg undanfarin misseri. Hliðstæða hennar er til í ýmsum öðrum löndum. Til dæmis eru svokölluð kívíbréf vel þekkt en það eru skuldabréf sem gefin eru út í mynt Nýja-Sjálands af erlendum aðilum, kengúrubréf eru gefin út í áströlskum dölum og svo framvegis.

Þetta er fengið að láni frá Marínó bloggvini mínum.

Nánari útskýring fyrir þá sem hafa gaman af tölum

Best er að nota dæmi til að sýna hvað þetta þýðir í raun og veru.  Hér er stillt upp dæmi, þar sem tekin eru lán og gefin út jöklabréf til tveggja ára.  Miðað er við að útgáfudagur sé 3. janúar 2007 og gjalddagi því 3. janúar 2009: 

  1. Íslenskur banki tekur lán til tveggja ára í CHF (svissneskir frankar) með LIBOR vöxtum.  Andvirði lánsins er 100 milljarðar króna eða CHF 1,75 milljarðar miðað við gengi CHF = 57,28 IKR.
  2. Erlendur aðili gefur út jöklabréf fyrir 100 milljarða til tveggja ára með 17,5% vöxtum.
  3. Þessir aðilar gera með sér vaxta- og gjaldmiðilsskipti, þannig að erlendi aðilinn fær fjárhæð CHF lánsins og tekur yfir greiðslur vegna þess, en íslenski bankinn sér um sölu á jöklabréfunum, fær andvirðið til sín og tekur að sér að greiða bréfin að lánstímanum liðnum.  Í samningi aðila er gerður upp vaxtamunur á þessu tveimur lánum.
  4. Í bókum íslenska bankans koma fram lánið í CHF, skiptisamningurinn og jöklabréfin.
  5. Íslenski bankinn notar peningana sem hann fær vegna jöklabréfanna til að lána til innlendra aðila.  Þar sem bankinn tók upphaflega lán í CHF, þá lánar hann út með viðmið í CHF alls 100 milljarða kr. eða CHF 1,75 milljarða.  Þessi lán eru til langs tíma, segjum 20 ára, og eru án greiðslu af höfuðstól fyrsta árið en með 3% vaxtaálagi.
  6. Að tveimur árum liðnum koma bæði lánið sem bankinn tók í CHF og jöklabréfin á gjalddaga.  Erlendi aðilinn greiðir CHF-lánið, en íslenski bankinn jöklabréfin.  Þá kemur upp forvitnileg staða.  Skuld íslenska bankans er 100 milljarðar króna plús vextir eða alls 135 milljarðar króna.  Skuld erlenda aðilans er CHF 1,75 milljarðar auk vaxta. Gefum okkur að vextir hafi verið 2% á ári.  Það þýðir að endurgreiðslan er CHF 1,82 milljarða eða alls kr. 207 milljarðar.  Málið er að upphæð CHF-lánsins skiptir ekki máli í krónum talið, þar sem að erlendi aðilinn tekur að sér að greiða lánið.
  7. Staða lána innlendu aðilanna fylgir aftur gengi CHF. Þær greiðslur sem íslenski bankinn er búinn að fá eru vaxtagreiðslur vegna alls lánsins fyrir 2007 sem eru 5% af CHF 1,75 milljörðum eða 87,5 milljónir CHF = 4,9 milljarða króna miðað við að 1 CHF = 56 IKR.  Seinna árið greiða lántakendur til baka 1/19 af láninu og 5% vexti af höfuðstól hverju sinni.  Höfuðstólsgreiðslan er því CHF 92 milljónir og vaxtagreiðslan um CHF 85 milljónir eða alls CHF 177 milljónir sem gerir 14,2 milljarða króna miðað við meðalgengi CHF á síðast ári upp á 80,36 IKR.  Alls hafa greiðslur til íslenska bankans því numið rúmlega 19 milljörðum króna.  Eftirstöðvar lánanna eru aftur CHF 1,66 milljarðar eða kr. 190 milljarðar miðað við gengi CHF = 114,76.
  8. Niðurstaðan er að íslenski bankinn situr upp með kröfu vegna jöklabréfa upp á kr. 135 milljarða, en á kröfu á innlenda lántakendur upp á kr. 190 milljarða auk þess að hafa fengið 19 milljarða greidda.  Hagnaður íslenska bankans á þessu viðskiptum á uppgjörsdegi jöklabréfanna er því 74 milljarðar IKR plús/mínus greiðslur sem fara á milli íslenska bankana og hins erlenda útgefenda jöklabréfanna í samræmi við ákvæði samningsins.  Þetta er dágóður gengishagnaður og nemur hann 74% af upphaflegu fjárhæðinni.  Ekki slæm ávöxtun það.

Það er örugglega margt gagnrýnivert í þessu dæmi og því væri fróðlegt, ef einhver sem hefur betri upplýsingar um eðli svona vaxta- og gjaldmiðlaskiptasamninga gæti endurreiknað þetta.  Eftir stendur að hagnaður íslenska bankans er gríðarlegur vegna gengisfalls krónunnar.  Þennan hagnað er hægt að nota til að færa lánin niður, t.d. með því að miða við annað gengi á CHF.  Ef við tökum t.d. upphæð eftirstöðva í CHF ákveðum að sú upphæð eigi að jafngilda 135 milljörðum, þá fáum við út gengið 1 CHF = 81,33 IKR sem er alveg ásættanlegt gengi miðað við hamfarir síðustu mánaða.  Ef notaður er upphaflegi höfuðstólinn, þ.e. 1,75 milljarða, þá fæst út gengið 1 CHF = 77,14 IKR.

Ef ég er alveg út í móa með þessar pælingar mínar, þá þætti mér vænt um að fá ábendingu um slíkt og ég mun strax endurskoða útreikninga mína eða fjarlægja færsluna.  Komi ekki slíkar ábendingar, þá lít ég svo á, að ég hafi talsvert til míns máls.

Niðurstaða ..  Helvítis focking fuck.

Við látum ekki bjóða okkur svona. Burtu með alla fjármálaglæpamenn. Og þá sem vernda þá.


mbl.is Sjóðsstjóri gufar upp og peningarnir líka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er komið nóg.


Ríkiskerfið greip því miður ekki inn í ! Þú ert forsætisráðherra. Ert þú að segja að þú hafir ekki haft vald til að grípa inn í.
Má benda háttvirtum ráðherra á að hann situr í ríkisstjórn sem felur í sér að stjórna ríkinu. Ríkis stjórn. Hag stjórn.
Löggjafarvald. Þetta höfðuð þið allt í höndum ykkar.
Ég er algjörlega búinn að fá nóg af stjórnmálamönnum sem eru ein stór afsökun.
Ertu ekki að meina Geir að þú ætlaðir að segja, stefna mín var röng ég gerði ekki nóg og við mig er að sakast ég viðurkenni það og ég skal víkja.
Þetta er það sem allir þrá að heyra sem hafa snefil af réttlætiskend. Það eru allir til í að fyrirgefa en það lýður enginn svona óábyrga og svívirðilega hegðun, sem fyllir algjörlega mælinn hjá þeim sem geta séð rétt undir og framhjá svona málflutningi. Ykkur er ekki treystandi.
Þú ert hagfræðimentaður. Hver leyfði jöklabréfin ? Hver samþykkir minni bindiskyldu á innlánsreikninga erlendis. Hvenær ætlið þið að fara að játa og viðurkenna.
Og það eina sem verður erfitt á þessu ári er að þola þessar lygar og þvælu frá ráðamönnum sem geta ekki komið fram með ábyrgð og talað sannleika.
Og þið ráðamenn ætlið að ljúga almenning fullan. Gerið þið ykkur grein fyrir því hvað þið eruð að gera.
Þið eruð leiðtogar þjóðar. Það er ungt fólk sem horfir á ykkur og fyllist viðbjóði, af því að það sjá það allir að þið eruð að ljúga. Heimurinn sér það. Almenningur sér það. Og ungmenni sjá það.
Ég óska þess Geir að þú komir til manns þíns og viðurkennir brot þín.
Þangað til ertu einungis ofvaxinn krakki. Og verður aldrey að manni.
Það er það gremjulega í þessu máli.
mbl.is Geir: Árið verður mjög erfitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hárrétt ákvörðun.


Þetta er gott mál að láta ekki froðusnakkara koma hingað með afsakannair fyrir stríðsglæpum.
Sendum þeim harðann tón og enga linkind. Ekkert múður.
mbl.is Heimsókn Ísraela til Íslands afþökkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband