Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010

Léleg afsökun.



Nenni ekki að svara svona vitleisu. Það vita allir að þú getur ekki farið að leika einleik. Þá verður þér kastað út úr þinginu.
mbl.is Ósamstaða VG veikir stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þjóðin að greiða 0,7 % til landeigenda ?

Er einhver sem getur svarað mér því hvort lögin séu virkilega svona.

HS Orka hf er almennt talin greiða mun hærra auðlindagjald en önnur orkuver í landinu. Hitaveitur eru almennt að greiða 0,7% eða lægra til landeigenda. Auðlindagjald vegna vatnsorkuvera Landsvirkjunar samsvarar um 0,75% sölutekna, en ekki 2,1% (Svartsengi með núverandi niðurdælingu) og 2,5% (Reykjanes) eins og hjá HS Orku hf.," að því er fram kemur í grein forstjóra HS Orku hf.


mbl.is Reiknað auðlindagjald 72 milljónir króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Páll skilur ekki hversvegna varð gengisfall á krónunni.

Árni virðis ætla að horfa algjörlega framhjá þeirri verðgildisrýrnun sem á sér stað í gegnum útlán bankana.

Þúsundir miljarða voru illa lánaðar og stundum var þeim einfaldlega stolið.

 Svona yfirlýsing sem blaðamenn apa upp eftir þingmönnum er í sjálfu sér opinberun áólæsi á hagfræðilögmálum og jafnvel einföldum eðlisfræðilögmálum.

 En til að útskýra einfaldlega verðgildisrýrnun krónunnar er ágætt að nota samlíkinguna við djúsinn.

Þú hellir 10 dl af djús þykkni  út í glasog hellir svo 90 desilítrum af vatni út í og færð ágæta blöndu sem er nægilega sterk til þess að fólk vilji kaupa hana á x marga dollara.

Svo ferð þú og hellir 1 lítra af vatni út í könnu og setur 5 dl af djús þykkni út í.

það gefur auga leið að þykknið er ekki eins bragðmikið.

Útlánaukning sem ekki eru verðmæti fyrir í hagkerfinu valda verðgildisrýrnun krónunnar.

Krónan er  ekkert sérstklega léleg. Hún lýtur sömu lögmálum og allir gjaldmiðlar. Hagkerfið þolir bara visst magn af skuldsetningu.

Ef skuldsetning er of mikil og sérstaklega bundin gengi annara gjaldmiðla er það ávísun á gengishrun.

Eftirlit með ýktum útlánum og framleiðslu falskra verðmæta í kaupum og sölu eignarhaldsfélaga og fyrirtækja eru orsakir.

Óvönduð útlán sem ekki var innistæða fyrir.

Krónan er fín útlánin of mikil og léleg.

Ef verðtrygging væri ekki væru útlán minni og verðgildi mundi minka minna.

 

 

 


mbl.is Rætt um skuldavanda barnafólks á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábærar fréttir.

Nú er bara að standa brimið af sér í smá stund og halda áfram. Við þurfum ekki arðsugur á hagkerfið í formi of stórra lána. Þessvegna liggur ekki eins mikið á Icesave og flestir vildu vera láta.

Það þarf að leysa en önnur má eru brýnni.


mbl.is Hugsanlega hagstæðara að fresta lántökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elsku Jóhanna.

 

Ég veit ekki hvað ég þarf að gera til þess að þú hlustir, en ég ætla að biðja þig enn einu sinni að hlusta mjög vel og leggja þig fram við að, skilja hvað er í húfi.

 Það var oft talað um að á Icesave hangi lífþráður ríkisstjórnar. Ég tel að hann liggi í sambandi ykkar við almenning.

     Ég er ekki að segja þetta til að gera ykkur óleik eða neitt illt. Með einskærri góðvild vil ég biðja ykkur að sýna auðmýkt og hlusta. Hlustið á það fólk sem er að segja mótmælin eru ekki út af engu og þau eru ekki tilbúin til að stríða ykkur. 

     Það er mitt kalda mat að ef þið hlustið ekki af öllu hjarta þá mun líf ríkisstjórnar fjara út. Það mun þá sannast að hvorki VG eða Samfylking starfa sem lýðræðislegir flokkar. Landsfundarsamþykktir flokkana sem er æðsta vald flokkana voru alveg skýr í þessum málum. og ef ekki er farið eftir þessum samþykktum þarf greinagóðar skýringar sem standast skoðun. Það er ekki nóg að koma með söguna af krónunni sem er ekki hægt að nota tvisvar. Við er búinn að lesa þá sögu. Hún endar illa.

    Þið hafið ekki svarað nákvæmlega um þessi mál og einungis látið meta tölulegar upphæðir á öðrum endanum. Það hefur ekkert mat farið fram á því hvernig óbeinn kostnaður legst á samfélagið.

    Ég trúi því að það ráði úrslitum hvernig svör þín verða við þessum fyrirspurnum. Það er enginn að ráðast á ykkkur og það er enginn að biðja um töfrabrögð.

Svo minni ég á þann margfalda kostnað sem er ekki greindur í öllum tillögum. Kostnaður við það að setja heimili í þrot.

25 % leiðrétting á verðbótaþáttum verðtryggingar og 50 % leiðrétting á gengistryggðum lánum mundi kosta íbúðarlánasjóð 70-90 miljarða.   Á 30 árum. Mér reiknast að það séu um 3-7 miljarðar á ári. 

Ekki slá upp tölum sem villa og slá ryki..........


mbl.is Vill greina svigrúm banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dautsche Bank hefur enga lagavörn í þessu máli.

Gengistryggðir samningar til almennings sem hafa ekki gengisvarnir eða innkomu í sömu myntum eru ósiðlegir og ólöglegir samningar og ganga gegn almennu viðskipta siðferð milli bankastofnanna.

Svona samningar ógna gengistöðugleika mynta og eru þessvegna sviksamlegir og í raun árás á gjaldmiðilinn. 

Það er ekki réttur í heiminum sem mundi dæma ríkinu í óhag. Svo framarlega sem ríkið stendur á rétti sínum og gefur ekki óeðlilega eftir alveg frá fyrsta degi. 

Sú lánastofnun sem lánaði til svona viðskipta hefur engalagalega stoð til að sækja á.

 


mbl.is Hætta á málssókn frá Deutsche Bank
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skilið þýfinu, þjófarnir ykkar og biðjist afsökunnar sem fyrst.


 Hvar er réttlætið að finna ?

Það er sorglegt að horfa upp á talnakallana skjóta sig endalaust í fótinn og halda því fram að það sé besta leiðin að láta alla fara á hausinn og pína þá sem fjárfestu á árunum 2005-2007 og segja svo a skattgreiðendur tapi svo hrikalega á þvi að gera það sem er rétt og augljóst

Er það skrítið að fólk sé reitt og fullt af vandlætingu gagnvart bönkunum. 

Ég skil ekki hvernig bankastjórarnir halda andlitinu undir þessari vitleisu. 

 Í Matteusar guðspjalli segir Jesú þessa dæmisögu.

Þá gekk Pétur til hans og spurði: ,,Herra, hve oft á ég að fyrirgefa bróður mínum, ef hann misgjörir við mig? Svo sem sjö sinnum?``
22
Jesús svaraði: ,,Ekki segi ég þér sjö sinnum heldur sjötíu sinnum sjö.
23
Því að líkt er um himnaríki og konung, sem vildi láta þjóna sína gjöra skil.
24
Hann hóf reikningsskilin, og var færður til hans maður, er skuldaði tíu þúsund talentur.
25
Sá gat ekkert borgað, og bauð konungur þá, að hann skyldi seldur ásamt konu og börnum og öllu, sem hann átti, til lúkningar skuldinni.
26
Þá féll þjónninn til fóta honum og sagði: ,Haf biðlund við mig, og ég mun borga þér allt.`
27
Og herra þjónsins kenndi í brjósti um hann, lét hann lausan og gaf honum upp skuldina.
28
Þegar þjónn þessi kom út, hitti hann einn samþjón sinn, sem skuldaði honum hundrað denara. Hann greip hann, tók fyrir kverkar honum og sagði: ,Borga það, sem þú skuldar!`
29
Samþjónn hans féll þá til fóta honum og bað hann: ,Haf biðlund við mig, og ég mun borga þér.`
30
En hann vildi ekki, heldur fór og lét varpa honum í fangelsi, uns hann hefði borgað skuldina.
31
Þegar samþjónar hans sáu, hvað orðið var, urðu þeir mjög hryggir og sögðu herra sínum allt, sem gjörst hafði.
32
Konungurinn kallar þá þjóninn fyrir sig og segir við hann: ,Illi þjónn, alla þessa skuld gaf ég þér upp, af því að þú baðst mig.
33
Bar þér þá ekki einnig að miskunna samþjóni þínum, eins og ég miskunnaði þér?`
34
Og konungur varð reiður og afhenti hann böðlunum, uns hann hefði goldið allt, sem hann skuldaði honum.
35
Þannig mun og faðir minn himneskur gjöra við yður, nema hver og einn yðar fyrirgefi af hjarta bróður sínum.``


mbl.is Lánin færð yfir á hálfvirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vörslusviptum þessi fyrirtæki starfsleyfinu strax.

Þessi fyritæki hafa ítrekað sýnt að þau hafa engann áhuga á að fara að lögum í starfsemi sinni og ættu srax að sæta sömu hörku og eiturlyfjasalar og síbrotamenn.

Eða á að líta á þessi fyrirtæki sem sjúklinga sem þarf að hjálpa ? 

Skaðabótaskylda gæti á endanum lent á ríkinu vegna þeirra fjárhæða sem er um að ræða.

það væri hið mesta þjóðþrifa mál að þessi fyrirtæki væru gerð upp og móðurfélög þeirra bankarnir tækju við þrotabúunum og færðu lánin niður eðlilegar upphæðir sem eru ekki ósiðlegar og sviksamlegar kröfur.

  Það er algerlega óþolandi að svona viðskiptahættir fái að líðast.

Ég skora á eftirlitsstofnanir að sinna skildu sinni. Ég skora á efnahagsbrotadeild lögreglu að setja lögbann á innheimtu þessara fyrirtækja. Lesið nú lögin.

Þess má geta að öll þessi fyrirtæki tóku lán í íslenskum krónum  frá móðurfélögum sínum og svína nú á svokölluðum viðskiptavinum sínum sem þau misþirma og hvelja í skjóli fordóma þeirra sem telja að þeir sem tóku bílalán séu réttdræpir og geti sjálfum sér um kennt.

 


mbl.is Mótmæla innheimtuaðferðum fjármögnunarfyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu oft hef ég bent á útlánastefnu bankana.

Þau eru óteljandi skiptin, sem ég hef leitt líkur að því að útlanastefna bankana hafi verið algerlega vanhugsuð, og í raun algjör þjófnaður af þeim þjóðhagslegu verðmætum sem fyrir voru í hagkerfinu.

Hér er opinber staðfesting á því.

Þegar útlánaaukning er svona mikil. Er ekki von á góðu samhvæmt klassískum kenningum hagfræði.

Í raun þynnnist krónan um útlánin (verðrýrnar). Krónubólga er nýtt orð sem ég vil koma inn hjá fólki til að fletta ofan af þeim ranghugmyndum sem fólk hefur um verðbólgu.

   Inflating the money suply= inflation  

 Krónubólga er ekki það sama og verðbólga. Krónubólga er orsök en verðbólga afleiðing.

 

Krónubólga er undanfari og orsök verðbólgu og gengisfellingu. Verð hækka vegna aukins fjármagns í umferð í gegnum útlánastefnu bankana og vanvita eftirlits. Hefur ekkert að gera með það hvort krónan er lítil eða léleg. Þannig tala eingöngu þeir sem hafa ekki hugmynd um hvernig verðgildi krónunnar rírnar. Og skilja ekki lögmálið um orsök og afleiðingu.

Verðtrygging verður alltaf þjófnaður ef lánabækur bankana eru ekki opnaðar. Bankaleynd til áframhaldandi spillingar er ávísun á frekari hamfarakapítalisma.


mbl.is Ný stefna felldi Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég mundi giska á það gagnstæða.

 

Mitt tilfinningalega mat er þetta.


mbl.is Telur aukna hörku í garð Íslendinga fylgja Wilders
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband