Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
ESB bólan er að springa.
14.1.2009 | 02:00
ESB bleyjan er að losna utan af Samfylkingunni og eftir stendur sannleikurinn nakinn og aumkunnarverður.
Að færa veskið sitt til Brussel er engin lausn. Það fjölgar ekki störfum það gefur ekki ungu fólki von um berti framtíð.
Eina sem það styður er óábyrgt bankaviðskiptalíf sem er of eigingjarnt til að hlíta Íslensku hagkerfi. Yfirklíku og fasisma í fjarska, með lögregluveldis ívafi.
Að færa spillinguna úr landi er ekki lausn. Að uppræta spillingu hér er lausn. Að endurreisa lyðræðið hér er lausn. Að boða til kosninga er lausn. Að semja við Noreg er tímabundin lausn. Sem hægt er að vinna að strax. Heyja Norge.
Óeirðir vegna kreppu í Riga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Til hamingju þið sem hafið hrópað.
14.1.2009 | 00:34
Spilling, spilling, spilling. Svik, svik, vanhæfni.
Það eru nú einhverjar raddir sem enn hafa óbeit á umræðunni um spillingu.
Finnst umræðan of rætin og ásakandi. En hvað ef engar raddir væru.
Það væri óeðlilegt. Og óhuggulegt. Og helsjúkt.
Bankastjórastöður auglýstar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Óeðlileg stjórnsemi.
13.1.2009 | 20:01
Nú ætla ég að taka það sérstaklega fram áður en lengra er horfið að mér finnst að leiðtogi sem gengur undir geislameðferð og höfuðskurðaðgerðir ætti að sýna sjálfum sér og þjóð sinni þá virðingu að taka sér frí í hvíld og endurnæringu, í erfiðum veikindum.
En þegar stjórnsemi og sú tilfinning yfirgnæfir að maður sé ómissandi þjösnast menn áfram.
Þetta gengur kannski til sjós við að slægja þorsk í stutta stund, heilsu til tjóns.
En gæti verið að veikindi hennar hafi áhrif á dómgreind hennar ?
Er Ingibjörg að taka lyf ? Er hún einig í lyfjameðferð ?
Ef hún væri flugmaður, fengi hún að fljúga ?
Margir mundu segja að það væri alfarið í hennar verkahring að ákveða hvort hún væri nógu heilsuhraust.
En það er einkenni ofstjórnunnar að sá stjórnsami treystir ekki samverkamönnum sínum til þess að stjórna.
Og situr þannig ótrúlega og óþarfa pressu á sjálfann sig.
Þetta má einnig heimfæra upp á ríkisstjórn.
Stjórnsemi, hroki og valdafíkn gerir það að verkum að ekki er hlustað á elilegar kröfur almennings.
Afskiptasemi sem þessi er Ingibjörg sýnir þarna, er einkenni ofstjórnunnar og er algjörlega óeðlileg.
Þarna sýnir hún vinkonu sinni vantraust. Hún treysti henni ekki til að tala opinberlega. Og vildi fá að hafa áhrif á það.
Þetta er þöggunar tilraun og vanhugsuð tilraun til stýringar.
Er ég að ráðast á Ingibjörgu þegar hún liggur, á sjúkrahúsi ?
Nei ég er að segja að Ingibjörg á að hvíla sig algjörlega á sjúkrahúsi.
Og treysta almættinu fyrir restinni.
Ingibjörg Sólrún kom boðum til Sigurbjargar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ótti ótti ótti
12.1.2009 | 15:15
Það getur verið að hann viti um einhver hryðjuverk gegn þjóð sinni sem klíkan hanns er búin að plana.
Eða þá að það er búið að ljúga ,gjöreiðingavopna eign uppá einhvern og kenna honum um hriðjuverk.
En annars eru allir bara að bíða eftir að hann hverfi inn í fortíðina. Og þeigi. Í raun hefur tunga þessa manns verið tæki fyrir skrattann allan tíman sem hann var á valdastóli. Hann hefur logið, hann hefur spunnið ótta og hann hefur afsakað stríðsglæpi. Þetta er maður í æðsta valdastóli. Hvílíkur hrillingur.
Þessar óttablöndnu yfirlýsingar eru ótrúleg stjórntaktík sem Amerískir borgararar og sumir Íslenskir falla fyrir.
En látum ekki gabba okkur, mesta ógnin við frið er árásar utanríkisstefna bandaríkjanna.
Hugsanleg árás helsta ógnin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lögmálið um orsök og afleiðingu.
12.1.2009 | 04:16
Það er eins og það þurfi að rifja upp fyrir Íslendingum lögmálið um orsök og afleiðingu.
Það að banki fjármagni 200.000.000.000 stöðu gegn krónu eru landráð að mínu áliti.
En það er víst til eitthvað fínna orð yfir það. Landráð er svo gamaldags og ásakandi.
Viðskiptaráð er örugglega með eitthvað fínt orð yfir þetta.
Það getur verið að viðskiptaráð sé ekki ásömu skoðun og telji þetta vera eðliðleg viðskipti sem fóru illa vegna utanaðkomandi aðstæðna sem ekki var hægt að ráða við vegna slæmra skilirða í viðskiptalífi. Og sé þessvegna ekki hægt að kenna um fall krónu. Það er ekki hægt að kenna seðlabanka um og ekki ríkisstjórn og þá síst fjármálaeftirliti.
Halló. Er ekki allt í lagi.
Þetta er augljóslega Jón og Gunnu að kenna sem keyptu of stórann flatskjá.
Það er alveg ljóst að það verður að taka af þeim húsið. Verðtryggingin sem við settum sér um þau.
Þau eru búin að hafa það allt of gott.
En svona að öllu gamni slepptu þá er orsök og það er afleiðing.
Ríkisstjórn, seðlabanki, bankar, og fjármálaeftirlit eiga að hafa hemil á orsök verðbólgu. Einfallt verkefni.
Hagfræði er ekki svona flókin eins og menn láta í veðri vaka.
Verðbólga er þjófnaður. Og glæpur gegn borgurum. Ríkisstjórn og yfirvöld eiga að vernda borgara sína fyrir óðaverðbólgu og gjaldmiðilsfalli.
Þetta er ekki flókið verkefni fyrir 4 stofnanir.
Ekki fleiri afsakanir takk.
Vilhjálmur: Ekki rétt að kenna bönkunum um allt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ætla stjórnvöld að hundsa þetta líka ?
10.1.2009 | 20:46
En innlendir stjórnmálamenn og Íslenskir bankamenn og og verkalýðsleiðtogar virðast ætla að flækja það fyrir sér að afnema þessi ólög, sem sett voru með Ólafslögum. Sem áttu einungis að vera tímabundin.
Þegar kemur að veigamiklu máli sem er augljóslega, bæði mannréttindabrot og leyfi fyrir ólöglega samninga. Gjörsamlega siðlaust og algjör nauðsyn að afnema, þá snýst þessi tvíhöfða ríkisstjórn í hringi og gerir ekkert. Þegar stjórnvöld bera fyrir sig rök um að lífeyrir ömmu skerðist er fokið í flest skjól.
Amma var heldur ekki spurð að þessu. Heldur voru það hagfræðingar sem blindaðir eru af einhverjum hagsmunum sem sögðu að Amma mundi missa sitt. En satt er að lífeyrir ömmu skerðist fyrir verðbólgu sem verðtryggingin kyndar undir.
Stjórnmál þurfa ekki að vera svona flókin og spillt. Þetta er í raun miklu einfaldara en það lítur út fyrir að vera.
En allt snýst þetta um vilja stjórnmálamanna til að standa fyrir réttlæti og sanngirni. Og að líta á orsök en ekki afleiðingu.
Það eru 63 þingmenn á þingi. Rísið nú af blundi. í Guðanna bænum. Ekki fresta því sem er nauðsynlegt fyrir lýðræðisþroska og réttlæti. Kosningalög og verðtrygging, og fara eftir tilmælum mannréttinda dómstóla varðandi fiskveiðistjórn. Nýja stjórn í seðlabanka og kosningar.
Margir sem hlusta á gagnrýnisraddir segja að þær séu allt of neikvæðar og ekki með neinar tillögur.
En það er langt frá því að vera satt, jafnvel þótt ríkisstjórn haldi því fram að ekkert komi fram í lausnarformi.
Allar þær grunn tillögur þeirra raddda sem mótmæla ríkisstjórn standa enn sem fullgildar og nauðsynlegar tillögur.
Ég veit ekki hvort stjórnvöld eru enn í einhversskonar áfalli eftir hrunið. En ég vona að fríið hafi þau notað til að leggjast undir feld og komast að þeirri niðurstöðu um hvað sé farsælast fyrir okkur öll. Stjórnvöld eru örugglega frekar sár yfir því að vera komin með þjóðina svona upp í andlitið á sér. En hún verður að komast yfir þá uppifun, því hún hverfur ekki í nánustu framtíð.
Nú verða stjórnvöld að taka leiðsögn. Það gengur ekki,lengur að selja atkvæði sitt.
Annars er voðinn vís.
Framtíð okkar er að veði.
Íslensk stjórnvöld harðlega gagnrýnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Frábær fundur.
9.1.2009 | 02:39
Mjög góður fundur fyrir alla aðila sem komu að þessum fundi,í alla staði.
Og fáir voru ósáttir en auðvitað voru ekki allir fullkomnlega sáttir eins og gengur.
En það kraumaði krafturinn á þesum fundi.
Ég bauð félaga mínum að koma og hann kom með kærustunni sinni.
Hann var svo hrifinn af fundinum að hann spurði mig hvernig hann gæti hjálpað, vegna þess að hann vildi gera allt til þess að hjálpa til við að halda fleiri fundi.
Það var fullt af ungu fólki á þessum fundi.
Ungt fólk á Íslandi er framtíðin og mesti fjársjóður Íslands. Og stjórnvöld eru að gera unga fólkinu lífið erfiðara að eignast húsnæði en þeirra sem á undan fóru. Og það er ekki sanngjarnt og það er ekki gott fyrir okkur sem samfélag.
Og mér finnst það persónulega ljótt þegar fólk er of fljótt að fordæma ungt fólk þegar það er að tjá örvæntingu sína og vanþóknun á slæmri þróun í samfélaginu, stjórnmálalegri og fjármálalegri spillingu. Hvort sem það hylur andlit sín eða ekki eða kastar eggi.
Fundur eins og þessi brýtur óþarfa múra milli lögreglu og mótmælenda. Minkar líkur á ofsa, hatri og fordómum.
Algjörlega frábær lýðræðislega.
Fundi lokið í sátt og samlyndi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Leitin er á enda.
8.1.2009 | 03:42
Það er ekki seinna vænna en að segja frá framtíðar lausninni. FISK krónunni.
Frjálsa Íslenska Krónan. Verðbólgu frjálsa krónan. FISK. Inflation free Icelandic krona.
Þessi gjaldmiðill losar okkur við verðtryggingu. Losar okkur við spillingu í stjórnmálum,seðlabanka og bönkum og veitir þeim þann umtalaðaaga sem þeir og við þurfum. Þetta kerfi færir okkur nær því að hafa marga smærri sparisjóði,frekar en þrjá risabanka með útrásarveiki. Þetta er auðlindatenging í formi gulls.
Kostnaður við að gulltryggja myntina er 80.000.000.000 og svo annað gull um 650.000.000.000. og krónan væri þá sett við 95 krónur á móti dollar. Þetta er eina raunverulega og heiðarlegasta leiðin sem mundi gera ruglaðar hagstjórnaríhlutanir seðlabanka óþarfar.
Leitin að framtíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Já flott hjá þér Pabbi.
8.1.2009 | 03:20
Það mætti halda að hann hafi alið mig upp því að ég hef nánast sömu sýn á þetta og hann.
En ég er með eina hugmynd í viðbót sem hann er búinn að gleyma og það er nýja verðbólgulausa Íslenska krónan.
Eða FISK eins og ég kalla hana. FISK krónan sem verður tengd beint við gull, losar okkur strax við verðbólgu og verðtryggingu. En svo verður opnaður einn gjaldeyrisbanki, evru og dollarabanki svo að menn hætti þessu kvaki um aðra gjaldmiðla og fara bara og fá sér evrur eða dollar eftir því sem þeim hentar, ekkert vesen.
En eitt skal ég segja þér Árni, að dollarinn er að fara að brenna upp fljótlega. Og evran lítur þá vel út í smá tíma.
En þá er gott að vera búinn að gulltryggja Íslensku FISK krónuna sem eitthvað sem barnabörnin geta notað örugg.
ÞAð er raunveruleg framtíðarsýn sem sér lengra en evran.
Gefum krónunni tækifæri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er útburður ekki bannaður á Íslandi ?
8.1.2009 | 02:19
Nei fyrirgefðu hann var tekinn upp aftur með Ólafslögum (AKA þrælalögin) ásamt verðtryggingu.
Þá var aftur leyfilegt að gera fólk að öreigum og skuldaþrælum og allir Alþingismenn eru búnir að horfa á þetta skrímsli vaxa síðan og þora ekki að gera neitt. Er eitthvað skrítið að Alþingi hafi ekki traust og vilja þjóðarinnar á bak við sig. Og hvað er að gerast í Luxenburg ?
Hvernig standa málin með millifærsluyfirlitin ?
Elín borin út úr bankanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |