Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
Ég á þessar skuldir.
19.12.2008 | 00:46
Ég skal taka þær á mig.
Hvað sagðiru 50,000,000,000
Ekki málið.
![]() |
Kröfur verði felldar niður að hluta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Algjör lygi.
19.12.2008 | 00:34
Leiðtogar sem eru raunverulegir leiðtogar gera sér grein fyrir að þeir eru fyrirmyndir.
Þeir gera sér grein fyrir að þeir hafa víðtæk áhrif út í samfélagið.
Bæði með orðum og athöfnum.
Þeir axla þá ábyrgð með því að viðurkenna þetta fordæmisgildi.
Stefna þessarar ríkisstjórnar hefur borið hrikalegt afhroð.
Alveg sama hvernig á það er litið.
Það gengur ekki upp að kenna öðrum um.
Leiðtogar hafa áhrif á hugsunnarhátt þjóðarinnar.
Leiðtogi í forustu með hausinn í evrópu er þjóð sinni til mikils skaða að mínu áliti.
Eina lausn samfylkingar er ESB. Og ESB leysir ekki vandan.
Evran leysir ekki vandann.
Dollarinn leysir ekki vandann.
Og ríkisstjórnin leysir ekki vandann.
Ríkisstjórnin er aðeins fær umm að auka vandann.
Það er til önnur lausn.
Borgar landsins koma með lausnina.
![]() |
Ingibjörg: Orsökin liggur í ofsafrjálshyggjunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Óeirðir.
18.12.2008 | 20:30
Sjálfur var ég í Los Angeles þegar óeirðir brutust út.
Eftir að Rodney King var laminn til óbóta af lögreglu.
Svartir héldu ró sinni og biðu eftir aðgerðum stjórnvalda.
Og það sauð uppúr vegna ófullnægjandi aðgerða yfirvalda, dómsvalda og lögreglu.
Haldið var hlífiskyldi yfir sekum mönnum.
Og dómsstólar og lagafroða notuð til að verja siðferðislega rangann hlut.
Það er rangt að stela og svíkja og ljúga.
Landráð hafa verið framin og landráð er verið að fremja.
Afglöp voru framin og afglöp er verið að fremja.
Hvernig er stjórnvöldum að takast það, að fullnægja réttlætinu ?
Frammistaða þeirra er algjörlega ófullnægjandi.
Og ég sé ekki neina afsökunn sem stjórnvöld hafa.
Þó að þau séu í raun ekkert nema ein stór afsökunn alla daga.
Það sem við erum að sjá í okkar samfélagi er það sama og gerðist þarna einn sumardag í borg englanna.
Nú er að verða til stór hópur fólks sem er verið að kremja ,réttarfarslega ,fjárhagslega og andlega.
Og vonir þeirra um réttlátt samfélag eru lítilsvirtar.
Ef eldar loga um áramót mun það vera skrifað á reikning ríkisstjórnarinnar.
Og allt til þess eins að stefnur flokka haldi andlitinu, og fylgi tapist ekki.
Völd frekar en þjóðarhagur og lýðræði.
Ég sá eldana byrja í fjarska og svo færðust þeir ofar í borgina eftir því sem leið á hvöld.
Um morguninn blasti við gríðarlegt eignartjón
Um daginn sá ég sýn.
Ég sá Austurvöll fullan af fólki.
Fólkið var dansandi af fögnuði þegar ríkisstjórnin fer frá og boðar til kosninga.
![]() |
Mótmæli halda áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Afglöp og siðferðisleysi.
18.12.2008 | 17:28
Skaðvaldurinn er enn að störfum í honum og þessari ríkisstjórn.
Afglöp ? Eða yfirlýst stefna viðskiptaráðherra.
18.12.2008 | 17:22
Hver á spron og hver á sparisjóð kef ?
Og hver á byr og hvernig er eignarhald þessara banka ?
Er dreift eignarhald á þeim ?
![]() |
Reglur um endurfjármögnun sparisjóða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýja efnahagsstefan komin út.
18.12.2008 | 17:13
Nýja lýðveldið Ísland, gefur út stefnu sína í peningamálum.
Ný stefna hefur verið tekin í peningamálum þessarar þjóðar.
Stefnan er ekki á nokkurn hátt skyld þeirri stefnu sem stjórnarflokkarnir eða forustusauðir þeirra hafa á stefnuskrá sinni enda hefur sú stefna bitnað á þeim sem minst meiga sín og lamað hagkerfi okkar.
Við stöndum frammifyrir stærstu ákvörðunum sem þjóð þessi hefur staðið frammi fyrir í 60 ár.
Þessi ríkisstjórn er við það að afvegaleiða umræðuna þannig að enginn lausn sé til nema evran.
Þetta eru hrikaleg umræða og stjórn þessi verður að fara frá hið fyrsta. Og flokkar þeirra að splundrast.
Lausnin er til og hún kemur framm. Haldið í vonina. Fólkið mun umbylta þessu samfélgi.
Og hagkerfi. Og bankakerfi. Og peningamálastefnu.
Stefnuna verður hægt að nálgast um og eftir áramót í heild sinni.
En drög að henni er að finna í umræðu borgaranna.
Ekki á þingi né í blöðum.
![]() |
Seðlabankinn varaður við í júní |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Leiðrétting.
18.12.2008 | 15:25
Meginstoðir samfélagslegs hagkerfis voru seldar til einkaaðila.
Samfélagsleg eing borgarana var einkavædd.
Afglöp stjórmmálamanna eru augljós.
Nú er komið nýtt hljóð í strokkinn það er vel. En platar mig ekki.
En orðin afar óheppileg eru notuð um hlut sem ætti í raun að vera réttað yfir.
Það er mín siðferðilega skoðun. Þjófnaður í skjóli laga og siðferðisleysis.
Og ég legg til að stofnaður verði siðferðisdómstóll af borgurum þessa lands.
Gefin verði út borgaraleg ákæra á hendur siðlausra stjórnmálamanna og bankastjóra.
Því ekki hafa stjórnmálamenn siðferðisþrek til þess að ásaka neinn.
Stefnur flokka verði ákærðar og yfirlýstar siðferðislausar og auglýstar í frjálsum fjölmiðlum ,ef þeir finnast.
![]() |
Misstu sjónar á hlutverki sínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Auglýsi eftir bankastjóra.
18.12.2008 | 06:16
Nýja frjálsa, lýðveldið Ísland hefur bankastarfsemi.
Og vantar þess vegna gamlann sparisjóðsstjóra sem er reyndur í útlánum.
Og nokkra gjalkera vönum sparisjóðum og almennum rekstri.
Markmið bankanns er að kaupa mintsláttubúnað frá bretlandi og seðlaprentunnarbúnað fyrir Nýju FISK krónuna.
FISK stendur fyrir.. frjálsa íslenska krónan. Laus við verðbólgu og verðtryggingu.
Auk þess auðvitað að sinna útlánum og allmennri þjónustu. Engir vogunarsjóðir verða starfræktir í bankanum.
Né almennt svind eins og hefð hefur skapast fyrir á Íslandi. Og þjófnaður.
Langtíma markmið bankanns er að prenta 100% gullrtyggðan gjaldmiðil.
Og færa fjárhagslegt vald fólksinns aftur til þeirra. Og leggja niður skudafréfasúkkulaði.
Falast verður eftir gullviðskiptasamningum við Afríku eða Kína eins fljótt og hægt er.
Þar sem nokuð víst þykir að Seðlabanki Íslands leggist gegn gull innflutningi
og gulltryggingu gjaldmiðla vegna þess að þá er ekki hægt að pína fólk með verðbólgu og stýrivöxtum.
Gætum við þurft að senda flugumenn til Afríku til viðskiptasamninga.
Áætlað er að ná strax 10% hluta af öllum bankaviðskiptum á Íslandi.
Og um árið 2010 verði Ísland laust undan IMF og seðlabanka.
Undirlyggjandi markmið er að grafa undan núverandi ríkisvaldshöfum.
Og taka stefnuna í peningamálum þessarar þjóðar. Vegna þess einfaldlega að ríkisstjórnin er farlama.
Og óhæf til að leiða þjóðina.
Evrur eru ekki vinsælar í þessum banka ,því að í raun eru evrur ekki vermætar heldur falskur gjaldmiðill stjórnað með flotgengi. Engin raunveruleg verðmæti standa þar á bakvið.
Borgarabankinn mun opna um mitt árið 2009.
Hvort sem það er í samvinnu eða óþökk stjórnvalda.
Vald hluthafa felst aðeins í því magni af gulli sem þeir geyma í bankanum ekki froðupappír.
Vilhjámur Árnason umbyltingarsinni.
Tekur við umsóknum.
![]() |
Fyrirtæki þrifust á blekkingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ofvaxnir undirmálsfiskar.
18.12.2008 | 05:41
Þessir ungu rísandi fylgiskaupendur eru búnir að vera í stjórnmálum.
En þeir eru ekki að fatta að nú eru aðrir tímar,þar sem fólk sér í gegnum vitleisuna.
Hvaða viti borni maður mundi vilja evruna.
Aðeins sá sem fylltur hefur verið af hagfræðifroðu og lygi.
Með því að losna við ríkisstjórnina og þjófana er allt í lagi með krónuna.
Og til hvers að taka þá upp evruna. Ég bara spyr.
![]() |
Formaðurinn með stálhnefann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vildi ekki Glitnir.
18.12.2008 | 05:10
Ég tjáði þeim að mér þætti nafnið mjög slakt og ég skildi ekki afhverju væri verið að breita nafninu.
Mér fannst þessir rauðu fánar og yfirdrifn auglýsingaherferð sem á eftir fylgdi ógeðsleg.
Mér finnst að það eigi að rífa þessa fána niður strax. Þeir minna mig á Bjarna Ármannson.
Og alltaf þegar ég keyri framhjá að hvöldin þá langar mig að stela þeim og kveikja í þeim.
Núna er sennilega málið að drífa sig í því.
![]() |
Nýi Glitnir verður Íslandsbanki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)