Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
Auglýsi eftir bankastjóra.
18.12.2008 | 02:22
Nýja frjálsa, lýðveldið Ísland hefur bankastarfsemi.
Og vantar þess vegna gamlann sparisjóðsstjóra sem er reyndur í útlánum.
Og nokkra gjalkera vönum sparisjóðum og almennum rekstri.
Markmið bankanns er að kaupa mintsláttubúnað frá bretlandi og seðlaprentunnarbúnað fyrir Nýju FISK krónuna.
FISK stendur fyrir.. frjálsa íslenska krónan. Laus við verðbólgu og verðtryggingu.
Auk þess auðvitað að sinna útlánum og allmennri þjónustu. Engir vogunarsjóðir verða starfræktir í bankanum.
Né almennt svind eins og hefð hefur skapast fyrir á Íslandi.
Langtíma markmið bankanns er að prenta 100% gullrtyggðan gjaldmiðil.
Og færa fjárhagslegt vald fólksinns aftur til þeirra.
Falast verður eftir gullviðskiptasamningum við Afríku eða Kína eins fljótt og hægt er.
Þar sem nokuð víst þikir að Seðlabanki Íslands leggist gegn gull innflutningi.
Gætum við þurft að senda flugumenn til Afríku til viðskiptasamninga.
Áætlað er að ná strax 10% hluta af öllum bankaviðskiptum á Íslandi.
Undirlyggjandi markmið er að grafa undan núverandi ríkisvaldshöfum.
Og taka stefnuna í peningamálum þessarar þjóðar.
Evrur eru ekki vinsælar í þessum banka ,því að í raun eru evrur ekki vermætar heldur falskur gjaldmiðill stjórnað með flotgengi. Engin raunveruleg verðmæti standa þar á bakvið.
Borgarabankinn mun opna um mitt árið 2009.
Hvort sem það er í samvinnu eða óþökk stjórnvalda.
Vilhjámur Árnason umbyltingarsinni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hrun bankakerfis engin afglöp.
17.12.2008 | 04:51
Allt bara hinum að kenna og svo erum við alveg að fara í ESB þetta verður allt í lagi.
Þá verður ekkert vesen meir. Evran er frábær. Krónan var alveg ónýt.
Þá þurfa bankarnir ekki að stjórna verðbólgunni lengur.
Þeir munu gera það betur í Brussel.
Kpmg er að skoða þetta allt saman.
Solla er fín hún ræður.
Ingibjörg Sólrún er sammála mér um eitt atriði.
16.12.2008 | 04:27
Ríkisstjórn sem hefur tvo flokka með sitthvora stefnuna í veigamiklum málum er óhæf til stjórnar hagkerfis.
Ég fagna því að Ingibjörg hefur komist að þessu.
Hún hefur kannski lesið grein mína en það er svolítið seint að gera sér grein fyrir þessu núna.
Og ég þarf engannn hagfræðing til að segja mér að þetta séu allt utanaðkomandi vandamál.
Stefnuvandamálin eru augljós.
Vandamálin eru heimabökuð.
Þessi ríkisstjórn.
Hún er óhæf til að móta stefnu í peningamálum.
Hún er óhæf til þess að leiða það endurreisnarstarf sem frammundan er.
Hún er jafnvel óhæf til að finna orsakir vandans.
Því að stefna í peningamálum er algjört grundvallaratriði fyrir öllu öðru.
Það er ekki og verður ekki þessari þjóð til heilla að hafa tvíhöfða stjórn.
En fyrst og fremst er hún óhæf til að taka aðra stefnu en þá sem skipbroti olli.
Þetta er auðvita merki þess að við lifum á tímum þar sem málamiðlanir og fylgiskaup munu ekki virka lengur.
Allar þær tilfæringar sem ekki miða að því að fólkið í landinu fái sína lýðræðisumbyltingu eru fyrirdæmdar til dauða.
Það er best fyrir alla að hún fari strax frá. Eftir að hún hefur samþykkt nýtt kosningafrumvarp.
Sem lagfærir til frambúðar þá lýðræðisskekkju sem hefur átt sér stað.
Og kosningar verði sem fyrst.
Og það er fáránlegt að það sé verið að leysa inn pólitískan hagnað eins og sussarinn hélt fram.
Ef þetta er ekki leiðrétt og stjórnmálamenn hætta að fresta því sem nauðsynlegt er að gera.
Þá munu kjósendur ekki líta við þessu fólki né þeirra flokkum.
Og það verður fyrirlitið fyrir gunguskap sinn og ekki fá aldrey uppreisn æru.
Þetta er ekki pólitískt flokksmat eða stjórnarandstöðu mat.
Heldur er ég að tala um hvernig réttlæti verður fullnægt.
Hvernig friður kemst á í þessu samfélagi.
Og hinn almenni borgari fær hugarró.
Stjórnmálamenn halda að það sé álag á þeim en það er meira álag á borgurunum.
Það eru allskonar sturlunnar einkenni að hrjá stórann hluta þjóðarinnar.
Við erum að verða óstarfhæft samfélag.
Það er að byggjast upp sjúpstæð óánæga og gremja í garð stjórnvalda.
Þessa tilfinningar grafa um sig og valda tjóni sem er ekki auðvelt að meta.
En ef þessu er ekki svarað. Mun sjóða uppúr.
Sjálfur var ég í Los Angeles þegar óeirðir brutust út.
Eftir að Rodney King var laminn til óbóta af lögreglu.
Og það sauð uppúr vegna ófullnægjandi aðgerða yfirvalda, dómsvalda og lögreglu.
Haldið var hlífiskyldi yfir sekum mönnum.
Og dómsstólar og lagafroða notuð til að verja siðferðislega rangann hlut.
Það er rangt að stela og svíkja.
Landráð hafa verið framin og landráð er verið að fremja.
Afglöp voru framin og afglöp er verið að fremja.
Hvernig er stjórnvöldum að takast það, að fullnægja réttlætinu ?
Frammistaða þeirra er algjörlega ófullnægjandi.
Og ég sé ekki neina afsökunn sem stjórnvöld hafa.
Þó að þau séu í raun ekkert nema ein stór afsökunn alla daga.
Það sem við erum að sjá í okkar samfélagi er það sama og gerðist þarna einn sumardag í borg englanna.
Nú er að verða til stór hópur fólks sem er verið að kremja ,réttarfarslega ,fjárhagslega og andlega.
Ef eldar loga um áramót mun það vera skrifað á reikning ríkisstjórnarinnar.
Og allt til þess eins að stefnur flokka haldi andlitinu,og fylgi tapist ekki.
Ég sá eldana byrja í fjarska og svo færðust þeir ofar í borgina eftir því sem leið á hvöld.
Um morguninn blasti við gríðarlegt eignartjón
Um daginn sá ég sýn.
Ég sá Austurvöll fullan af fólki.Fólkið var dansandi af fögnuði þegar ríkisstjórnin fer frá og boðar til kosninga.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvar eru prestarnir sem eiga að standa með þjóðinni ?
15.12.2008 | 17:13
Takk fyrir alla hjálpina til þeirra sem minna meiga sín.
Það er fallegt að sjá hjálparstarfið blómstra.
En lækning fæst ekki af því að meðhöndla afleiðingarnar eingöngu.
Hver er ykkar stefna ? Að hylla mammon áfram ?
Ykkur finnst kannski skrítið að fólk sýni fyrirlitningu til stjórnvalda og mótmæli.
En það skildi ekki vekja undrun hjá ykkur.
Því að þeir sem mótmæla órétti eru að standa með Guði gegn órétti.
Og hafa þessvegna Jesú með sér í liði.
Ég ásaka prestastétt þessara þjóðar um þöggun og sefjun.
Ég veit að þið kjósið flestir að rugga ekki bátnum og stjórnast af ótta við að hafa skoðun.
Hvert er höfuð ykkar Kristur eða kölski ?
Ef þið stjórnist af ótta við að segja eitthvað þá er sá svarti ykkar herra.
Nú vek ég ykkur af værum svefni til baráttu í orði, bæn og verki, lýð ykkar til verndar og heilla.
Ef þið vogið ykkur að messa stillingu og samþykki við yfirvald sem er sjúkt af spillingu megið þið hundar heita.
Verðbólga á að vera ykkar óvinur, kjaraskerðing öryrkja á að vera ykkar bitbein.
Tilflutningur auðs frá fátækum til ríkra á að vera efst á ykkar blaði.
Ég hvet ykkur til meiri skrifa og ræðu.
Stefna stjórnvalda er að halda óbreittu ástandi.
Stefna þeirra skal endurvakin lifandi dauð.
Ísland skal vera alþjóðleg fjármálamiðstöð fyrir spillingu og græðgi.
Þar sem misskipting auðs skal vera í hávegum höfð.
Og prestarnir þaga og réttlæta stjórnvöld.
Og lögreglan talar um að halda friðinn.
Hvar er kjarkur ykkar nú á ögurstundu.
Ég skora á ykkur að kynna ykkur málin betur ,svo að þið getið óhikað tekið afstöðu með réttlætinu og sannleikanum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýa verðbólgulausa krónan komin á markað.
15.12.2008 | 03:17
Nýja gullkrónan fékk skráningu á NASDAK í dag á draumagengi útvegsmanna og iðnaðar.
100 FISK á móti einum dollar.
Og getur hver sem er þá fengið 1 gramm af gulli fyrir 2000 FISK.
Mikil viðskipti voru með nýju FISK í dag og lokuðu þau í 700,000,000,000 FISK
FISK stendur fyrir . Frjáls íslensk krona.
Frjáls við verðbólgu, verðtryggingu og ýktar verðsveiflur.
Hún mun héðan og til eylífðar fylgja gullverði.
Ekkert vesen.
Iðnskólinn hóf í dag nám í mintslætti.
Fjárfestingasjóður fólksins hefur keypt Royal mint of London fyrir 490,000,000 FISK
Sem var lokað fyrr á árinu vegna verkefnaskorts, út af evrunni.
Í dag fékk forsætisráðherra Íslands Vilhjálmur Árnason árnaðarskeiti frá Nelson Mandela til handar þjóðarinnar í þakklætisskini fyrir gullviðskiptasamningana.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.12.2008 kl. 01:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Raunveruleg króna.
15.12.2008 | 00:29
Hvað er með þetta þráláta evru rugl.
Þetta er í öllum blöðum allir hagfræðibullararnir koma fram.
Heilu gáfumannaþingin koma saman og ræða evruna og jafnvel dollarann.
Og stjórnmálaflokkar hafa þetta fyrir sýna einu bleyju.
Þetta er einhversskonar sálsýki. Eða hagsmuna sýki.
Er enginn sem sér lengra en nefið á sér.
Langar ykkur ekki að hætta að ljúga að sjálfum ykkur,börnunum og gamla fólkinu.
Þið ætlið að slökkva eld með bensíni, bara minna octan.
Hvað er með þessa verðbólgu sem er verið að ræða eins og hún sé húsdýr sem verði að ala.
En hún étur ömmu og fer ofan í sparibaukinn hjá krökkunum.
Sálsjúka manneskjan sem engann frið hefur fundið er í hverju blaði og öllum fréttatímum.
Henni líður svo illa með sjálfri sér að hún bara verður að vera einhverstaðar annarstaðar í einhvherju öðru landi með einhvern annan gjaldmiðil.Og fá lánaða hugmyndafræði sem er heimsborgaraleg.
Og auðvitað er hún sálsjúk. Það er búið að ljúga að henni alla hennar ævi.
Hún á að spara til að ávaxta en tapar samt, fjárfesta í húsnæði og borga og borga án þess að eignast neitt.
Hún fór í HÍ og lærði hvernig átti að funkera í þessari froðu.
Það er engin framtíð hér,hugsar hún með sér.
Þar sem lausninni er hafnað á kostnað fólksinns.
Hver gaf eiginlega í þessari lönguvitleisu.
Eða var þetta bara allt óvart ?
Kanski.
En hættu þá að gefa og stokkaðu upp á nýtt.
Við þurfum ekki nýja krónu.
Við þurfum bara raunverulega krónu.
Og framtíðarsýn.
Og bleyjulausa framtíð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvað er það versta við ESB.
13.12.2008 | 03:45
Hún er á floti.
hi hi hi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sleggjudómar
12.12.2008 | 21:41
Úrtak Valgerðar Sverrisdóttir á málþingi um samskipti Íslands og Evrópu. 2006
Ég held að það sé óþarft að fjölyrða um þau jákvæðu áhrif sem EES-samningurinn hefur haft á íslenskt samfélag og viðskiptalíf. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig íslenskt athafnafólk hefur fagnandi tekið nýjum tækifærum og nýtt sér þau til hins ítrasta. Þó verður að hafa hugfast að samningurinn veitti okkur tækifæri sem einnig hefði verið hægt að glutra niður. Ef ekki hefði einnig komið til stefnufesta ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum, umfangsmikið einkavæðingarferli, skattalækkanir og mikilvægar breytingar á lífeyrisskerfinu hefði útkoman eflaust orðið önnur. Veldur hver á heldur.
Þá tel ég ekki síður mikilvægt að gefa gaum þeirri hugarfarsbreytingu, sem átt hefur sér stað á liðnum árum. Okkur hefur vaxið ásmegin og við höfum öðlast aukna trú á sjálfum okkur. Við erum stolt af því að vera Íslendingar og stöndum keikari en nokkru sinni fyrr á alþjóðavettvangi. Aukin tengsl og samgangur við nágranna okkar á öllum sviðum hefur þroskað okkur, bæði sem einstaklinga og þjóð - ekki einungis í viðskiptalífinu, heldur einnig á sviði menningar, mennta, vísinda, lista og stjórnmála, svo dæmi séu tekin.
Orðræðan er að breytast. Sleggjudómar eru fátíðari og hnútukastið hefur minnkað. Í frumbernsku EES töluðu stjórnmálamenn um að Þjóðverjar myndu kaupa alla banka, flestar jarðir og stærstu matvöruverslanir í landinu. Útnárinn Ísland hyrfi í hendur erlendra auðhringa á augabragði og ódýrt vinnuafl svipti landann atvinnu sinni. Samningurinn myndi mögulega opna þeim dyr sem ætluðu að flytjast til Evrópu, en hann yrði til óheilla fyrir marga þá sem eftir sætu og ætluðu að vera Íslendingar áfram eins og sumir orðuðu það. Jafnvel var rætt um að samningurinn væri kvenfjandsamlegur þar sem einkum karlmenn nýttu sér reglur samningsins um frjálsa för launþega á sama tíma og eiginkonur þeirra væru fastar í gettóum farandverkamanna. Aðrir töldu að fátækt og auðnuleysi myndu steypast yfir Íslendinga og einhverjir að þjóðin myndi glata tungu sinni, menningu og sjálfstæði á örskömmum tíma. Þeir sem gengu lengst töluðu um svik og landráð og svona í lokin má geta þess að við samþykkt EES-samningsins á Alþingi voru þau orð látin falla að þar sem danskur maður færi með æðstu völd í EB værum við óbeint komin undir þeirra yfirráð á ný.
Mínar hugrenningar.
Ég verð að viðurkenna að ég er ekki alveg viss um hvað hnútakast er, ég ætla að skoða málið.
En það er greinilega eitthvað að marka suma sleggjudóma.
Við erum búin að glata okkar fjárhagslega sjálfstæði í vissum skilningi.
Og erum við það að afhenda það ESB endanlega. Það er hægt að burtskýra með hagfæðifroðu ESB og bankamanna.
En raunverulega eru venjulegar manneskjur að glata fjárhagslegu sjálfstæði enn lengra frá sér.
Og selja sig undir óguðlegt vald. Í fjarlægu landi. Í gegnum evruna. Já þetta eru kallaðir sleggjudómar.
VIð verðum auðvitað að brjótast undan þessu valdi sem er við lýði hér.
Þjóðverjar verða stærstu hluthafar gömlu nýju bankana. Og eru sjávarútvegsfyrirtækin ekki í eigu bankana.
Eins og ég skil orðið landráð þá er það, þegar einhver stjórnmálamaður eða einstaklingur tekur ákvörðun sem skaðar land og þjóð. Eða hagkerfi.
Við þurfum kannski að taka þetta orð aðeins til skoðunnar.
Einkavæðing auðlinda er landráð að mínu mati. Ég er samt ekki að tala um að hengja neinn ég er að segja þetta til að benda á hvað orðið þýðir í mínum huga svo að það sé alveg skýrt.
Evru upptaka eða dollarisation eru landráð að mínu mati.
Að einkavæða bankana annað sinn og fjármagna þá í annað sinn fyrir almanna fé og selja þá eru landráð að mínu mati.
Að ákvarðannir varðandi þetta séu teknar án lýðræðislegra umræðna og ákvörðunnartöku er landráð að mínu mati. Alveg sama hver skoðun þingmanns er. Hanns skoðun er aukaatriði í þessu samhengi. Lýðræði er samviska okkar svo lengi sem við búum við lýðræði.
Það getur verið að einhverjum finnist það púkó að þurfa að spurja litla manninn.
En í lýðræði er auðmýkt algjört lykilatriði. Því hafa stjórmálamenn á Íslandi glatað eða ekki þroskað.
Landráð er auðvelt að fremja þegar maður fyrirlýtur þegna sína.
Þá getur maður kallað þá lýðskrumara, óróaseggi og hættu við réttarríkið.
Réttarríkið er nánast í uppnámi vegna þrýstings á stjórnvöld sagði einn í sjónvarpi um daginn.
Forsendur réttarríkissinns hafa verið brotnar að mati flestra þeirra sem mótmæla.
Ríkisstjórnin hefur ekki umboð þjóðarinnar til að taka svona há lán án þess að spurja okkur.
Þegar þú stjórnmálamaður góður ert sakaður um að taka ákvörðun sem skaðar þegna þína, viltu hugsa þinn gang í alvöru án þess að ásaka aðra um sleggjudóma, hugsaðu málið vel. Ekki vera svona sár, hvað ertu að verja ?
Gæti það verið að sært, brenglað stolt þitt sé að reyna að lifa áfram.
Eða nýfrjálshyggjan ? Eða Evrópudraumurinn.
Er skaðvaldurinn ekki bara á fullu ennþá í ákvarðannatöku stjórnvalda ?
Viðurkendu bara að þú hafir haft rangt fyrir þér og farðu frá í stýrinu í smá stund. Það þarf að taka aðra stefnu.
Þetta er algjör geðveiki.
Ég er harður, reiður og fullur af lausnum hugmyndum og umbyltingarkrafti.
Lifi lýðræðisumbyltingin.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.12.2008 kl. 03:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þjóðerniskend. Góð eða slæm.
12.12.2008 | 17:50
Það er dálítið rætt um þjóðerniskend í sambandi við umræðu um inngöngu í evrópusambandið.
Og að þjóðerniskendin rísi þegar rætt er um inngöngu í ESB. Hún eigi rót sína að rekja til ótta við hið óþekkta og jafnvel að evrópusambandið sé of stór hugsun fyrir suma að gleypa og þá verði þeir hræddir.
Það sé búið að kosta okkur svo mikið að halda úti litlum gjaldmiðil og við hefðum átt að fara inn í evrópusambandið fyrir löngu síðan. Og svo er hjónaband notað til þess að útskýra hversvegna við ættum að ganga í Evrópusambandið.
Finna til trausts, og öryggis og maður afsalar sér sjálfstæði þegar maður giftir sig. Og jafnvel sagt að maður finni hamingjuna með þvi að giftast.
Allar þessar tilgátur eru rangar á vissan hátt.
1.
Ástæðan fyrir hrapi krónu voru spilling og slæm efnahagstjórn og spillt stjórnsýsla,og viðskiptalíf auk þess að vera kjölfestulaus gjaldmiðill.
Íslenska krónan átti undir högg að sækja vegna spillingar, slæmri efnahagstjórn og stefnumótun ríkisstjórna.
Stefnumótun felur meðal annars í sér þær nýfrjálshyggju hagstjórnarhugmyndir sem réðu ferð ásamt flotgengisstefnunni.
Í samfélögum þar sem spilling, græðgi og eingirni stýrir stjórnmálamönnum og viðskiptalífi falla gjaldmiðlar.
Og landið tapar fjárhagslegu sjálfstæði sínu.
Mörg dæmi eru úr suðrænum heimi um atburði eins og við erum að upplifa. Bæði frá suður-ameríku og afríku.
Aðeins við þessar aðstæður taka þjóðir upp aðra gjaldmiðla. Við óstjórn.
Til þess eins að lægja græðgisöfl eða endanlega selja landið.
Ég held að á Íslandi hafi bæði atriðin verið í gangi.
Það er þess vegna rangt að kenna gjaldmiðil um hvernig fór.
Stjórnmálamenn og hagstjórn verður að axla ábyrgð.
Annað er algjör fyrra.
Þessvegna eru mótmæli.
2.
Mögulega fær Þjóðerniskend fólk til að segja nei við inngöngu í Evrópusambandið.
En það er algjör misskilningur að þjóðerniskend sé alltaf fasismi eða eitthversskonar rembingurs sem aftri okkur.
Flestir eru ánægðir með að vera í samstarfi við evrópusambandið.
Það sem þjóðerniskendin segir er. Afsalaðu þér ekki menningu, tungumáli (né fjárhagslegu sjálfstæði).
Í nafni þess að þú eigir að verða partur af stærri heild.
Og Evrópusambandið biður okkur ekki að gera fyrri tvö atriðin.
En síðasta atriðið er það mikilvægasta.
Gjaldmiðill er partur af þjóðerni og rótum.
Og er einfaldlega sárt að missa og alls ekki nauðsynlegt.
Það sem þetta snýst um er fjárhagslegt vald hjá fólki.
Þetta er mikilvæg atriði. Þetta atriði snýst ekki um fasisma.
Þetta snýst eiginlega um varúð gegn nýfrjálshyggju. Eða vissa og heilbrigða varúð gegn samþjöppun valds í gegnum auð.
Auðvald.
Hvert skal auðvaldið vera ?
Viljum við að valdið liggi hjá stóru bönkunum eða viljum við að valdið sé hjá fólkinu ?
Þetta er stóra spurningin sem liggur undir þeim öllum.
Ef að þessar hugleiðingar eru flokkaðar undir einhverskonar þjóðrembing eða fasisma, þá er það bara útúrsnúningur.
Fyrir þá sem trúa á jöfnuð. Þá er það alltaf vafasamt að auðvald sé fært á fárra hendur.
Peningastefna Evrópusambandsinns er það sem fólk setur varúð við. Allavegana ég.
Ef þetta er þjóðerniskend. Þá er hún bara eitthvað gott mundi ég segja.
Ef hugsun þjóðerniskendar fer inn á braut þess að vera yfir aðra hafinn eða ofar, þá er hugsunin komin á vitlausa braut.
Það er til dæmis hægt að vera svo mikill menntahroki, að það er ekki hægt að ræða við mann.
Hafa of mikið vit til þess að tala við þinn minsta bróður.
Góður hlutur á rangri braut.
Þjóðerniskend varðandi krónuna er bara yndisleg og verður þá að burtskýra með góðum rökum.
Það sem áhangendur evrunnar gera er að skella þessu fram eins og fullyrðingu um eitthvað sem sé alveg sjálfsagt að gera.
Þetta er ekki sjálfsagt. Og það að það séu menn á þingi sem séu statt og stöðugt að vinna að því að koma okkur í Evrópusambandið án þess að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram, það er ofríki og valdnýðsla.
Ef þessi umræða þolir ekki ljósið og gagnryni frá öllum hliðum þá er eins gott bara að leggja niður alla umræðu.
Kjósa einn fasista til að stjórna þesu öllu, og leggja niður lýðræðið.
Hvort sem Evrópusambandið er góð hugmynd eða ekki þá viljum við flest fá að hafa eitthvað um það að segja.
Persónulega er ég enn þeirrar skoðunnar að ESB með evru sé ekki til góða fyrir hinn almenna borgara.
EES virðist vera okkur til blessunnar að mörgu leiti.
Ég hlusta á rök varðandi aðild að efnahagsbandalaginu.
Enn hef ég ekki fundið nein rök sem segja mér að við ættum að taka upp evru eða dollar.
Ég hef aftur á móti fundið og séð fullt af rökum til stuðnings þess að forsenda betri hagstjórnar sé ný ríkisstjórn með nýja stefnu eftir kosningar. Nýr seðlabankastjóri. Nýtt hagkerfi. Ný kjölfesta.
Nýtt fiskveiðikerfi. Og ný auðlindavernd eða lög. Ný fjölmiðlalög.
Nýtt kosningakerfi.
Ekkert af þessu hefur nokkuð að gera með evru að mínu áliti.
3.
Varðandi samlíkinguna með giftinguna er eftirfarandi að athuga.
Hamingjuna er ekki að finna í giftingunni heldur í þjónustunni við hvort annað og í elsku Guðs og eðli.
Það getur vel verið að kona finni til öryggis og trausts hjá karli og öfugt.
En traust okkar og öryggi verður að koma frá Guði annars er um óheilbrigt samband að ræða að mínu áliti.
Og að afsala sér sjálfstæðinu á þessum forsendum er ávísun á óhamingju. Vegna þess að inn í hjónaband var farið á röngum forsendum.
Þessi líking er að mínu áliti eins slæm og margar líkingarnar um björgunnarleiðangurinn.
Því að allir sjómenn vita að ef vitlaus stefna veldur strandi, þá fara sjópróf fram í landi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýtt skjaldamerki.
11.12.2008 | 05:42
Breytingartillaga á skjaldarmerki Íslands.
Drekanum banað.
11.12.2008 | 02:56
Sjaldamerki nýja Íslands.
Tákrænt afnám græðginnar, eigingirnin vegin.
Við getum svo sagt börnunum frá þessu um aldir.
Drekinn var tákn græðgi og spllingar.
En ljónið er tákn heiðarleika, þjónustu og eilífs sigurs.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)