Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Handjárn handjárn.

Handjárn handjárn.
Ákæra.
Yfirheyrsla og stór sekt strax.
mbl.is Leyndi eignarhaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já kannski.

Já kannski veitir ekki af stormi til að blása burt spillingarfnik fyrir jólin.
En vonandi verður svo mikill stormur að ríkisstjórnin fellur um koll.
Og svarthöfði fer á hliðina. Ráðamenn sem eiga heima á safni. Frekar en innan um lifandi fólk.
Auðmagnssleikjur og valdasjúklingar. Með yfirráða drauma.
Það eru hundruðir heilagra hermanna sem biðja statt og stöðugt gegn spillingu og óheiðarleika.
Skuggar munu verða upp lýstir og plott klúðrast.
Ekki verður þeim vært sem áfram vilja ganga í myrkrinu gegn þjóðinni.
Megi jóladraugurinn ásækja þá í svefni. Og hrekja þá út í ljósið.


mbl.is Stormi spáð um landið sunnan- og vestanvert annað kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áskorun til þingmanna.

Þessi kona hefur stærri kúlur en þið.
Farið nú að standa gegn því sem þið vitið að er spilling og er að kæfa landið okkar.
Ég skora á þingmenn að losa sig undan spilltu flokksvaldi og finna sannfæringu yfir Jólin til að standa upp fyrir það sem eru grundvallar jöfnuður og mannréttindi.
Allir þurfið þið að þora að vera öðruvísi og brjótast út úr þæginda sætinu á þinginu.
Ég óska þess að kraftur Guðs fylli ykkur af sannfæringu og krafti til að gera það rétta.
mbl.is Vill að Jústsénkó hætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vof vof.

Vof vof vof vof.
mbl.is Eigandinn fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blessun Páfans.

Páfinn í Róm studdi mál mitt í morgunn með orðum sínum í frétt í fréttablaðinu í morgunn. Og ég sannfærðist enn meir um að sú leið sem ég hef verið að rannsaka dag og nótt með hjálp góðra manna, er sú leið sem Guð hefur valið fyrir þessa þjóð okkur til blessunnar og öðrum til fyrirmyndar. (athugið að ég segi að ég er sannfærður,það er ekki endilega svo með þig.)
Já það er gaman að finna að æðsti andlegi leiðtogi Rómversku kaþólsku kirkjunnar sé sammála mér um þau skref sem marka ber í peningastefnumálum.
Hann bað fyrir visku og framsýni. Hann sagði Ég bið fyrir því að þeir sem bera ábyrgð á pólitískum og efnahagslegum ákvörðunum láti visku, framsýni og almannaheill ráða för.
Ég er ekkert sérstaklega hrifinn af Páfanum en þarna sagði hann hluti sem voru mjög áhugaverðir.
Visku og framsýni er nákvæmlega það sem tillögur mínar í peningamálum opinbera.
Viska Salomons var frá Guði ekki honum. Það á einnig við um þessar tillögur.
Mitt er gullið og mitt er silfrið. Segir drottinn alsherjar.
Framsýnin er í því að sjá fyrir hrun fölsku peningana sem skortir kjölfestu.
Og viskan er að tengja gjaldmiðilin aftur því sem Guð skapaði. Auðlindum Jarðar.
Hagsmunamál fyrir útgerð vegna þess að gull fylgir oftast olíu fast eftir í verði.
Og stærsti kosnaður útgerðar er olía. Verð á olíu hækkar aðalega gagnvart dollar en ekki gulli.
Og svo eru þetta tillögur sem hafa almannaheill algjörlega í fyrirrúmi og setur fjárhagslegt vald almennings framar en stjórnmálamannana.
Þess má geta að langar og stórar skýrslur eru til sem leiða okkur í sannleikan um þessi mál.
En í einfaldleika sínum er hann þessi.
Seðlar með enga kjölfestu falla alltaf í trúverðuleika vegna ákvarðannatöku banka og stjórnvalda.
100 % gulltryggð króna mundi halda verðgildi sínu í vasa verkamannsinns og gömlu konunnar sem er búin að leggja fyrir.
Smátt og smátt mundum við færa okkur inn í heiðarleg viðskipti. Og raunveruleg vermæti.
Einn frægast bankamaður heims. Seðlabankastjórinn Allan Greenspan sagði eftir sinn langa feril og reyndar líka áður en hann hóf ferilinn að besta gengisstefnuformið væri gulltenging.
Nú starfaði hann við það lengi að beita ýmsum ráðum við að hemja sveiflur á markaði sem er náttúrulega með stæsta magn af seðlum í umferð, dollarann.
Og eitt af þeim ráðum sem notað er sem ráð til að hemja fjármagnskreppu er peningaprentun. í þessu tilfelli eru það trilljónir Bandaríkjadollara.Og svo verður til skekkja sem er reynt að leiðrétta á annan hátt. Svona gengur dansinn áfram og menn deila um hvað sé hænan og hvað sé eggið.
En Guð almáttugur var alltaf með sitt plan og það voru raunveruleg heiðarleg vöruskipti.
Seðlar eru notaðir sem gull. Gull í staðinn fyrir vöru eða þorsk.
Mannanna verk gera þetta að einhverju flóknu stýriverki sem þarf her af fólki til að greina og viðhalda í skefjum.
Því að þetta er einfaldlega rotið kerfi sem fjötrar alla.Og þetta þarf ekki að vera svona.
Það eru til plön um hvernig þessu væri snúið til baka.
Og þá stefnu ber einfaldlega að marka og taka.
Útskýra fyrir þjóðinni.
Þó að mér takist ekki að sannfæra þig hér á mun lífið sannfæra þig fyrr en seinna.
mbl.is Hvetur til útgjalda til þess að örva hagkerfi heimsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona verður þetta í vor.

Svona verða götur Reykjavíkur.
Ef þingmenn fara ekki að drífa sig í að leiðrétta hluti sem eru augljóslega og algjörlega óásættanlegir.
Setja fjölmiðlalög,kosningalög, stjórnlagaþingslög,auðlindalög og afnema verðtryggingu.
Bara einfaldlega hætta að drega lappirnar í veigamiklum málum.
Skoða hlutina út frá heildarhagsmunum. Eða eins og páfinn sagði nýlega almannaheill.
Sýna smá leiðtogahæfileika.
En eins og margir sjá augljóslega ,er vonlítið að alþingi eða ríkisstjórnskipti um karakter sem hefur verið lengi í mótun á einni nóttu.
Evrópuhugmyndin er grafinn inn í forustu samfasistsaflokksinns og einkavæðingasamsteipu hugmyndin inn í sjálfstæðisflokk. Auk mikillar slefandi trúar á erlent auðmagn og banka.
Persónuleg sannfæring þingmanna er lítil sem engin og sveiflast þeir flestir eins og segl í vindi með soðanakönnunum fréttablaðsinns.
Að mínu mati eru þingmenn óhæfir til að starfa í lýðræðisríki. Og auðvitað finna þeir mikla lausn í því að kasta ábyrgðinni til Brussel svo að við þurfum ekki að móta nýja peningamálastefnu.

En ég vona að þeir geri það sem er best fyrir þjóðina. Ekki flokkana.


mbl.is Mótmælendur handteknir í Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einróma alþingi.

Þetta er allaveganna statement.
En svo er að semja fjölmiðlalög og kosningalög og auðlindalög.
Og boða til kosninga. Og fara í frí.
Og í guðanna bænum hættið þessu EVRU rugli.
Alþingi er stuttbuxnasamkoma þar sem álvöru karlmennska er lítil sem engin.
Það er meiri bindisskylda á þingi en í bönkunum.
Það ætti að vera samfélagsþjónustu skylda á þingmönnum en ekki bindisskylda.
Þar sem þeir eru sendir í fisk eða á spítala að skúra einu sinni í mánuði.
Svo að það safnist ekki fyrir í þeim þessi hvítflibbahroki gagnvart almenning.
Sem kristallast í Geir og sollu.


mbl.is Fé til málshöfðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með allar tölur réttar.

Ég er með allar tölur réttar.
Það kostar seðlabanka Íslands 75,000,000,000 að festa gengið við 100 kr á móti dollar.
Losna við verðbólgu og verðtryggingu í leiðinni. Bless bless flotgengisstefna.Og vaxtaþrælahald.
14 tonn af gulli.
Og taka ofurvald stjórnmálamanna og bankamanna af þeim og færa það í hendurnar á þeim sem er ætlað að hafa það.
Nefnilega þér hinum almenna borgara.
Krónan okkar hættir að skreppa saman í vasa okkar út af ákvörðunum stjórnmálamanna.
Og við förum raunverulega að eignast eitthvað.
Evran verður hjákátleg miðað við þessa lausn.
Ef þú ert hagfræðingur komdu með það. Og reyndu að rökræða við mig um hagfræðifroðuna sem þú lærðir í skólanum sem þú borgaðir of mikið fyrir.
Ég elska að reka úr ykkur vitleisuna.
mbl.is Enginn með allar tölur réttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirbæn.


Í krafti Jesú Krists frá Nasaret þá bölva ég þessu krabbameini og hasta á öll veikindi í þínu lífi Birna.
Sértu nú alheil og frísk.
Ég stend gegn anda veikinda og slappleika í Jesú nafni.
Alveg óháð því hvort þú sért rétta manneskjan í þetta starf.
Guð blessi þig og fjölskyldu þína.
Sé eitthvað óhreint í pokahorninu, þá skora ég á þig að gera það upp.
Og öðlast fullkomið traust og frelsi í lífinu.
mbl.is Stríddi við krabbamein frá sumri að aðalfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tómt vesen.

Ekki sáttur við þetta hjá Obama. Þó að ég sé sáttur að öðru leiti.
Þessi mínus fer í kladdan. Hjá mér.
Obama réttlætir veru fleiri hermanna í Írak með því að þeir verði að vera í írak til að vernda verktaka Bandaríkjanna í Írak. Sem eru yfir 1000.
Haliburton og fleiri stórfyrirtæki.
Þetta er eins og með verðtrygginguna . Það er ekki hægt út af þessu hérna sem við gerðum útaf þessu sem við gerum vitlaust . Þannig að ef við vindum ofan af þessu þá verður allt ómögulegt hjá þessum. Þannig að það er best að gera ekkert. Þvílíkt kjaftæði og gunguháttur og spilling.
mbl.is Fleiri bandarískir hermenn sendir til Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband