Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Gleðileg Jól ?

Gleðilegar jóla kveðjur til allra á blogginu.
En ég verð að segja ykkur smá sögu.

Ég var spurður að því um daginn, hvar ég verði á jólunum.
Ég svaraði.
Það verður engin jóla hátíð fyrr en þessi ríkisstjórn er farin frá.
Ég var svo spurður að því í næstu andrá. Hvenær ætlar þú að raka þig drengur.
Og ég svaraði.
Það verður sko enginn rakstur fyrr en þessi ríkisstjórn fer frá.
Og svo hló ég innilega.

Ég er auðvitað búinn að raka mig og held Jól.
En mér fannst þetta mjög fyndið.


Skyldi þetta vera dagurinn sem samið var um örlög Íslands ?

Flott plott ESB... Strassburg.. eftirlaun ... ekkert röfl..engin mótmæli...stutt á spán.. þetta er draumurinn..
Ég er eins og Eiður hjá Barcelona. Og tjékkaðu á þessum fána..maður..

Ég skal tala fyrir þessu.


mbl.is ESB samþykkir björgunaraðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áskorunn til félagsmanna.

Félagsmenn haldið vöku ykkar þarna er eitt það alstærsta baráttumál sem frammundan er í Íslensku fjármálaumhverfi.Þarna er spllingin vellandi.
Þessir sjóðir verða að komast úr höndum atvinnurekenda og í hendur borgara.
Stöndum vörð um sjóðina, hungraðir fjárglæframenn sitja um sjóðina.
Verið vakandi yfir öllum kosningum.
mbl.is Gunnar Páll einn í framboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sammála bloomberg.

Sjálfur var ég í Los Angeles þegar óeirðir brutust út.
Eftir að Rodney King var laminn til óbóta af lögreglu.
Svartir héldu ró sinni og biðu eftir aðgerðum stjórnvalda. Eins og nú.
Og það sauð uppúr vegna ófullnægjandi aðgerða yfirvalda, dómsvalda og lögreglu.
Haldið var hlífiskyldi yfir sekum mönnum. Enginn sagði stefna okkar var röng við okkur er að sakast.
Og dómsstólar og lagafroða voru notuð til að verja siðferðislega rangann hlut.

Það er rangt að stela og svíkja og ljúga.
Landráð hafa verið framin og landráð er verið að fremja.
Afglöp voru framin og afglöp er verið að fremja.
Seðlabankinn er skrímsli. Stjórnvöld eru ómanneskjuleg.

Hvernig er stjórnvöldum að takast það, að fullnægja réttlætinu ?
Frammistaða þeirra er algjörlega ófullnægjandi.
Og ég sé ekki neina afsökunn sem stjórnvöld hafa.
Þó að þau séu í raun ekkert nema ein stór afsökunn alla daga.

Það sem við erum að sjá í okkar samfélagi er það sama og gerðist þarna einn sumardag í borg englanna.
Nú er að verða til stór hópur fólks sem er verið að kremja ,réttarfarslega ,fjárhagslega og andlega.
Og vonir þeirra um réttlátt samfélag eru lítilsvirtar.
Ef eldar loga um áramót mun það vera skrifað á reikning ríkisstjórnarinnar.
Og allt til þess eins að stefnur flokka haldi andlitinu, og fylgi tapist ekki. Aumkunnarvert.
Völd frekar en þjóðarhagur og lýðræði. Óttaslegnir auðvaldspúkar, dúkkur.
Þá fylgi ég nú frekar norninni en óabyrgum leiðtogum.
Þess má geta að til eru góðar nornir sem leggja bara seiði á illsku spilltra manna.
Og vilja þeim ekkert meira en það að þeir sjái að sér.
En eins og á miðöldum vilja sumir brenna þær fyrir kukl og djöfladýrkun.
En meiri er sá djöfull sem reið þessu samfélagi nánast til heljar. Og hann heitir mammon. Og rót hanns er fégræðgi.
Ég er bara ekkert hissa á að menn noti ýmsar aðferðir til að koma þessari spilltu stjórn frá.

Ég sá eldana byrja í fjarska og svo færðust þeir ofar í borgina eftir því sem leið á hvöld.
Um morguninn blasti við gríðarlegt eignartjón

Um daginn sá ég sýn.
Ég sá Austurvöll fullan af fólki.
Fólkið var dansandi af fögnuði þegar ríkisstjórnin fer frá og boðar til kosninga.


mbl.is Óttast að uppúr sjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er alveg ljóst að allar hrókeringar eru brandari.

Þeir menn sem í staðin kæmu hafa jafn lítið umboð frá þjóðinni og hinir.
Stefna stjórnarinnar er enn skaðvaldur fyrir almenning.
Við viljum kosningar. Hversu oft á að seigja ykkur það.
Þrumur réttlætis munu æra þá sem standa í veginum fyrir lýðræðis umbótum.
Ef að þið vogið ykkur að stefna inn í evrópusambandið án þess að vitræn umræða fari fram í samfélaginu þá er er endanlega úti um ykkur.
Flokkarnir ykkar eru ekki vilji þjóðarinnar munið þið það.
Þannig að hver sú ákvörðun sem tekin verður á ykkar floksþingi hefur ekkert með vilja þjóðarinnar að gera.
Því flokkar ykkar eru fullir af ranghugmyndum um hvernig sé best að haga hlutunum ykkur í hag.
mbl.is Geir: Engar ráðherrabreytingar fyrirhugaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er með annað mál fyrir fjármálaeftirlitið.

Þegar debetkot voru sett á markað.
Voru þetta kort sem áttu að vera kort sem þú notaðir til að greiða með viðskipti sem þú áttir inneign fyrir.
Þetta átti auðvitað að vera fyrir þægindarauka fyrir viðskiptavini.
Kortið var hinnsvegar fært um að koma þér í skuld við lánveitendur og ef um yfirdrátt var að ræða voru himinháar sektir. Eingin tilraun var gerð til að laga kerfið þannig að ekki væri hægt að fara yfirum.
Sektir voru stjarnfræðilegar þegar þær voru samanteknar. Og þegar þetta komst í umræðu og á borð neitendastofu voru allir skuldarar kallaðir inn til að skrifa uppá nýjan pappír sem heimilaði banka að gera þetta lagalega og með undirskrift er þá bankinn að verja sig lögsókn. Ekkert er hér rætt um siðferðilega skyldu bankanns gegn viðskiptavini sínum. En að mínu mati er það hagur bankanns að hugsa fyrst og fremst um viðskiptavin sinn því hann er sá sem heldur bankanum uppi.
Þetta kostar mikið fyrir ungt fólk og oft er þetta hliðið sem fólk gengur í skuldir innum.
Ég skora á fólk sem hefur lent í þessu að senda fjármálaeftirliti ákærur.
Þetta á ekki að líðast. Sérstaklega þar sem bankar gætu tekið upp á því aftur að útbýta debetkortum í frímínótum í menntaskólum.


mbl.is NBI og Landsvaki viðurkenna mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðlindatenging.

Allir Íslendingar. Viðskiptalíf og sjávarútvegur mundu hagnast af því að kjölfesta krónuna við gull.
Gull fylgir olíu fast eftir á ársgrundvelli. Og er þessvegna mikið betra viðmið. Spurningin um gjaldgengi krónunnar er oft til umræðu. Gjaldmiðill sem er tengdur gulli tengir hann auðlind sem er alstaðar á jörðinni. Og gerir hann trúverðugan framar öllu.
Og svo er talað um mynt svæði. Gull hefur alþjóðlegt svæði þ.e.a.s það er notað út um allan heim. Stærra myntsvæði fengir þú ekki.
Það sem þessi tenging gerir, er að krónan tengist auðlindum jarðar.
Það er alls ekki ávinningur fyrir okkur að taka upp evruna. Það er afsal á valdi sem Guð gaf okkur. Fjárhagslegt vald.
Ef útgerðamenn og sjómenn vilja að ég kynni þessa leið fyrir þeim þá er ég allur af vilja gerður.
Þetta er betri leið en evran betri leið en dollarinn og betri leið en fljótandi króna.
Útgerðamenn takið eftir. Berið saman kílóverð af þorski og únsu af gulli og finnið hvað eðlilegt meðalverð á þorski er miðað við gull. þ.e.a.s. hvað fást morg kíló af þorski fyrir eina únsu af gulli. Berið saman tímabil.
Finnið með mér meðal kílómagn af þorski fyrir únsu af gulli. Þá getum við fljótlega fengið draumagengið sem má alls ekki halla á neinn annars fer þjóðarskútan algjörlega á hliðina.
Það sem fæst með þessu er auðvitað líka það að engin verðtrygging verður nauðsynleg og vextir lækka.
Það sem geris líka er að hallarekstur ríkissinns verður að leggjast af og verðbólga hvefur.
Verðris og verðhjöðnun mun eiga sér stað en ekki þessi stöðuga rýrnun á verðmætum í vasa borgaranna.
Samstillt átak þjóðarinnar og viðskiptalífs auk viðskiptasamninga við afríku, sviss og kína. Gætu fljótt safnað því magi af gulli sem til þarf til að kjölfesta krónuna. það eru um 12-14 tonn eins og staðan er núna.
72,000,000,000-75,000,000,000 Auk þess sem þessi leið mundi verða til þess að aldrei væri fáar krónur seldar.
Því að heimurinn þráir gjaldmiðla sem eru sannir.
Guð blessi þig..
mbl.is Kostnaður við ESB-aðild aldrei kynntur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viljum við ekki sturta þessu kerfi niður ?

Vill ekki almenningur í þessu landi búa við heilbrigða hagstjórn.
Eigum við ekki að umbylta landinu í vor og taka upp fjármálastefnu sem er raunveruleg.
En ekki endalaus svik og þjófnaður. Evran er ekki lausn fyrir verkalýðin. Evran er ekki lausn fyrir ömmu.
Evran er lausn fyrir stóru bankana. Ekki þig.
Ný peningamálastefna er lausn fyrir borgarana.
Raunverulegir peningar en ekki kjölfestulausir peningar sem stjórnmálamenn og bankar leika sér með.
Og stela úr vasa þínum án þess að þú getir nokkuð um það sagt.
Það er til heiðarlegri og betri leið. Sem fellir ofurvald bankana og stórfyrirtækja.
Kynntu þér málið. Nánar í færslum í desember.
mbl.is Verðbólgan mælist 18,1%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umbylting

Breytingar munu ekki verða ef við bíðum eftir því að einhver annar eða einver annar tími komi. Við erum þau sem við erum búin að bíða eftir. Við erum þær breytingar sem við þráum.

Change will not come if we wait for some other person or some other time. We are the ones we've been waiting for. We are the change that we seek.

Barack Obama


Jesú er knúsari.

Frábær hugmynd krakkar.
Það er til önnur versunnarmiðstöð.
Ekki láta þetta stoppa ykkur.
Það er alltaf einhver mótbára við óheftan kærleika.
Guð vill knúsa alla menn og konur.
Þannig að ég sé ekki betur en að þið séuð að feta í fótspor Jesú sem er okkar æðsti tilgangur.
Og mennirnir höfnuðu honum. Bara sama gamla sagan.
Gleðileg Jól.
mbl.is Kærleikslausar kauphallir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband