Leiðrétt ávarp forsætisráðherra.

Að begja sannleikann sér í vil er alveg það sama og að ljúga.

1. Villa.
Geir segir að Stjórnvöld hafi ekkert geta gert til að stöðva hrun banka á Íslandi eftir að heimskreppan skall á af fullum þunga.

Flestir gera sér fulla grein fyrir því að það var ekki hægt enda stóðu bankan á brauðfótum sem voru skapaðir af lágri bindiskildu og hroka. Þeir voru á fárra manna höndum og illa reknir. Yfirráðasamir og útrásargjarnir. Sem gerði þá mjög fallvalta.
Það er þetta sem stjórnvöld eiga að taka ábyrgð á. Og fara frá. Vegna þess að stefna þeirra, stefnumótun, lög og reglur varðandi banka er við að sakast.

2. Villa
Sú stefna sem fylgt hefur verið hefur að mestu verið að fyrirmynd norðurlanda.
Og að það hafi verið víðtæk samstaða í samfélaginu að við værum á réttri braut.

Það er nú hægt að segja frekar að stefnan hafi verið fengin að láni hjá Reagan-Bush, Tatcher-Blair.
Sem er oft kend við tricle down economics. Þar sem þeim efnuðu er hyglað á kosnaðþeirra sem líða skort.
Og ofuráhersla á einkavæðingu á grunnstoðum, samfélagslegs efnahagskerfis. Og framtíðarsýn stjórnvalda var alþjóðleg fjármálaparadís fyrir erlent fjármagn.
Og þessvegna er ekki hægt að segja að þetta sé að norrænni fyrirmynd.
Fyrirmyndin er önnur og er líkari því sem Hannes Hólmsteinn hefur lýst sem uppleysingu auðlinda sem lágu dauð.
Þau fyrirtæki sem almenningur átti voru seld, þær auðlindir sem almenningur á voru einkavæddar.
Fjármunir voru leystir upp inn í hagkerfið. Eins og það var kallað.
Ekkert norrænt við þessa stefnu og ekkert velferðarríkislegt.

3. villa
Hann segir að við höfum tvo kosti. Að fylgja stefnu viðskiptafrelsis og náinnar alþjóðlegrar efnahagssamvinnu eins og gert hefur verið.
Eða dregið okkur til hlés, einangrað okkur og horfið aftur til fyrri viðskiptahátta. Og svo kemur strax á eftir, einangrun og einhæfni og vonleysi.

Allt verður svart og ómögulegt ef ekki er farið eftir því sem ég segi eða eins og gert hefur verið í minni stjórnartíð.
Þannig að það er stórhættulegt að gera eitthvað öðuvísi, það endar bara í vonleisi og dauða.

Þetta er klassískur málflutningur Íhaldsinns -þess sem rígheldur með bláum hnefum um stýri lýðræðisríkis svo jaðrar við hreinræktaðann fasisma.
Málflutningurinn er á þá leið að það sé enginn fær um að vera í ríkisstjórn nema við.

Látið ekki blekkjast


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Það þurfti ekki að annað en að sjá áramóta annálan til þess að sjá að Geir H Harde og ríkisstjórnininni var síendurtekið varað við því sem koma skal. Hver sérfræðingurinn á fætur öðrum varaði við þessu og voru viðbrögð ríkissjórnarinnar að blása á slíka yfirlýsingar. Geir H Harde sagði meðal annars að hagkerfi ísland væri ekki of lítið fyrir bankanna og þorgerður Katrín brást með offorsi við gagnríni sérfræðings á það sem væri að gerast á Íslandi.  Að hann  Geir segi að stjórnvöld hafi ekki getað stöðvað er hann í raun að viðurkenna það að hann sé VANHÆFUR TIL ÞESS AÐ STJÓRNA LANDINU.

Brynjar Jóhannsson, 1.1.2009 kl. 12:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband