Pabbi var sjálfstæðismaður.

Já pabbi sagði mér að kjósa sjálfstæðisflokkinn.
Eg spurði í hvaða flokki var Vilmundur Gylfason ?
Hann vissi það ekki.
Einu sinni var sjálfstæðisflokkurinn eitthvað sem stóð fyrir sjálfstæði.
En nú stendur hann fyrir eitthvað allt annað.
Stendur eiginlega fyrir arðrán og landráð og stéttaskiptingu.
Bankaveldisvæðingu og ESB.
Þessvegna hika ég ekki við að kjósa VG.
Flokkur sem hefur sannfæringu en sveiflast ekki eins og segl í vindi eftir skoðannakönnunum.
Og gefur kjósendum skýra mynd á því sem það er að kjósa.
Fylgiskaup hinna flokkana eru hjákátleg að mínu mati.
Og það er dálítill tími síðan mér þvarr öll virðing fyrir ríkisstjórn.
Tvíhöfða áttavilt í björgunnarleiðangri.
Að reyna að telja fólki trú um að allt muni vesna ef þau fara.
Eins og þau hafi ekki klúðrað nógu miklu.
Jeddúddamíja.


mbl.is Vinstri grænir kynna þrjú frumvörp um skattabreytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bíddu... þú trúir á frjálsan markað en kýst vinstri græna? Ef VG kemst í ríkisstjórn munum við færast í átt að sjálfsþurftarbúskap, auknum ríkisafskiptum og minna frelsi.

Ég skil vel að þú sért reiður út í Sjálfstæðisflokkinn. Satt að segja eru allir flokkar á landinu handónýtir, en það á ekki eftir að laga nokkurn skapaðan hluta að kjósa vinstri græna yfir okkur.

Gulli (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 17:32

2 identicon

Gulli, komdu nú fram undir fullu nafni.....

Í örðu lagi, hvað er að því að fara í átt að sjáfsþurftarbúskap?

Það er að rísa bylgja í evrópu sem stefnir í átt að sjáfbærum fyrirtækjum, heimilum og búsakpi, sjáfbær búsakpur er líklegast líka hægt að kalla sjálfsþurftarbúskap...!

Það er greinilegt að kapitalisminn virkar ekki og peningagræðgin... svo hvað er að því að fara aðeins til baka? Með nýrri tækni

Unnsteinn Jóhannsson (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 17:39

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Minnið kemur þegar kreppir að. Engin þingmaður fer á þing nema fyrir tilstilli fjöldans. Þeir þingmenn sem leggjast svo lágt að snúast gegn hagsmun fjöldans mun uppskera eins og þeir sá. Þingmenn verða ekki á táknrænum launum næst 4 árin ef aðgerðir þingheims ná fram að ganga. Menn verða að  fórna til að uppskera. Það verður nóg af alvöru jarðtengdum atvinnuleysingjum eftir áramótin til að fylla upp í núverandi tölu þingmanna.

Það þarf sterka menn af báðum kynjum til að sigla okkur  til réttlátara þjóðfélags þar sem allir fá jöfn tækifæri að græða í þágu fjöldans.

Við þurfum þingmenn með heila en ekki með aðstoðarmenn. Ef þeir eru til að uppfylla kjaftaþörf þá er nú best að fækka þingmönnum.  Það geta allir myndað flokk á breiðum grunni sem byggir almennum rétti til tækifæra og Stétt með Stétt.  

Júlíus Björnsson, 19.12.2008 kl. 17:56

4 identicon

Ja ég leyfi mér nú enn að trúa á markaðsbúskapinn og heiðarlegan kapítalísma sem kerfi sem hefur sýnt að það getur komið heilmiklu til leiðar til að lækka framleiðslukostnað og bæta gæði vörunnar og skila hagstæðu vöruverð og góðum vörum til almennings.

Kapítalisminn þarf auðvitað virkt aðhald almennings og stjórnvalda.

Þessi hinnsvegar nýfrjálshyggja og bankabóla hefur komið miklu óorði á kapitalismann og þá vitleysu verður að stöðva og blind oftrú á kapitalismann er líka stórhættuleg.

Ég verð þó að segja alveg eins og er að mér finnst VG vera langskásti kosturinn í dag til að leiða að því borði að byggja upp hið nýja Ísland. 

Ég veit þeir verða ekki einir í því, en ég tel alveg nauðsynlegt að þeir komi þar mjög sterkir inn.

Við hefðum betur hlustað á mörg varnaðarorð Ögmundar og félaga og verðum nú að viðurkenna að margt af því sem þeir sögðu var rétt.

Þjóðin þarf því á VG að halda til að byggja upp hið nýja ÍSLAND !

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 18:06

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Sjálfsþurftarbúskapur: Það að vera sjálfum sér nógur það eru nú forsenda fyrir því að ávaxta sitt pund á náttúrulega heiðarlegan hátt. Ef það er ekki grunnur höfuðstólshyggju  þá veit ég ekki hvað klassískur Kapítalismi er.

Ný-frjálshyggja samkvæmt netinu: sprettur upp þegar einstaklingar birtast, oftast í skjóli vöntunar eða galla á reglugerðum, og mata krókinn á fjöldanum en ekki í þágu hans. Er að mínu mati stutt á milli skipulagðar glæpastarfsemi og fjárglæfrastarfsemi.

Ísland á íslenskum forsemdum til framtíðar. Það sem gagnast útlendingum ekki gagnast okkur alls ekki.

Íslendingar hafa greind og hreysti og auðlindir til að spjara sig. Vera öðrum til fyrirmyndar. Þetta er spurning um gæði ekki fjölda. Það er minna gras hinum megin ef vel er að gáð.

Júlíus Björnsson, 19.12.2008 kl. 20:07

6 Smámynd: Vilhjálmur Árnason

Til að svara gulla þá tel ég að hræðsluáróður ríkisstjórnar og ríkjandi flokka um að allt verði ómögulegt ef aðrir taki við hafi smitað þig aðeins.

Ég bara settist niður og las stefnuskránna þeirra og hún er besta stefnuskráin þarna úti.

Það getur vel verið að betri stefnuskrá komi fram.

Stefnuskrá flokkana sem eru að rembast við að halda í stýrið eftir slysið er enn að valda tjóni.

Það eitt og sér hefur hrikalegar afleiðingar. Fyrir alla og líka þá flokka sem þrjóskast við.

Vilhjálmur Árnason, 19.12.2008 kl. 22:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband