Enn og aftur er ráðherra að búa til lagaóvissu í orðræðu sinni.
13.2.2010 | 14:01
Þeir sem lesa þessi lög með opnum augum sjá fljótt hver andi laganna er.
Andi laganna er skýr og orðalagið skýrt.
Það er því algjör rökleysa og útúrsnúningur hjá ráðherra að tala um orðalagsútfærslur í þessu samhengi.
Ég veit að ASÍ og fleiri vilja verja þessa gjörninga með EES samningnum. En það mundi þýða að evrópska efnahagssvæðið væri tekið fram fyrir Íslensk lög og vernd íslenskra lántaka. Það mundi þýða það að við mundum jarða 30 þúsund manns á kostnað EES og ofurtrú á ESB.
Nú ætla ég ekki að gera neitt sérstaklega lítið úr EES samningnum en ég geri mjög lítið úr þeirri hugsunn að hann sé ofar íslenskum lögum, einföldu réttlæti og neitendavernd.
Það sem hefur gerst í jaðarsvæðum ESB Þ.E.A.S gengistryggð lán hafa verið veitt inn á jaðarsvæði af evrópskum fjármálastofnunum með hjálp heimamanna og útkoman er samkvæmt lögmálum hagfræðinnar, ofurskuldsetning tengd öðrum gjaldmiðlum eru stór hættulegar arðsugur á jaðarsvæðin og veikja efnahag þeirra og draga úr þeim þrótt. Gengi gjaldmiðla jaðarsvæðanna verður að falla til þess jafnvægi náist. Lánveitingar inn á jaðarsvæði ESB setja efnahag þessara þjóða í rúst og svo koma þau á hnjánum til Brussel. Þetta gerðis á Írlandi. En við höfum leið út og hún er sú að snúa sem mestu af þessum samningum yfir í krónur. Og láta fjármálakerfið taka réttilegt tjón af þessu.
Lögin um vexti og verðtryggingu voru sett til þess að gyrða fyrir svona hluti en bankar fóru fram hjá lögunum í skjóli FME og þar með er ríkið orðið samábyrgt. Málið er allt hið erfiðasta fyrir ríkið.
Einfaldasta leiðin til að líta á þessi lán er eiginlega svona.
Hegðun bankana er á þessa leið. Þeir voru teknir fyrir of hraðann akstur, það er bannað með lögum. Bankarnir segja í vörn sinni það er í lagi að keyra hratt ef það er pínulítið á ská. Það stendur ekki í lögunum að það megi ekki keyra of hratt á ská.
Lagaóvissa er eingöngu tilbúin og rök eru engin sem gera þessi lán lögleg. Og svo fyrir utan það að eftir að hrunið verður svo forsendubrestur sem gerir lánin öll óraunhæfar kröfur.
Á meðan fjármálkerfið og viðskiptaráðherra viðurkennir þetta ekki, kvelst fólk í tugum þúsunda. Fjárhagsgrundvöllur yfir 20 þúsund fjölskyldna bíður skaða. Stór hluta af þessum hóp hefur enga aðra leið en að fara í greiðsluaðlögun.
Fólk sem hefur hvorki farið of hratt eða skuldsett sig of mikið heldur einfaldlega gekk inn í samninga sem voru bjarnargildrur.
Það er sorglegt að sjá gungurnar sem við kusum ( kusum reyndar ekki í þessu tilfelli) taka á þessu kristaltæra réttlætismáli.
Það má ekki veita gengistryggð lán til þeirra sem geta ekki varið sigmeð eignum í þeim myntum sem lánin eru tengd.
Hæstiréttur þarf að skera úr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:39 | Facebook
Athugasemdir
Það voru sett einokunarlögum verðtryggingu um 1982 og skal hún undantekningarlaust miða við neysluverðsvísitölu.
verðlag á gjaldmiðlum , gull, demantar, pund, dollar,fasteignir .... er bannað að miða við til að tryggja greiðslu höfuðstól og vaxta lándrottins í íslenskum krónum. Flestir munu hafa fengið Íslenskar krónur.
Íslendingar halda almennt að capital prize guarantee þýði verðlag á matvælum eða neysluvöru í bland við nýbyggingarkostnað og ekkert annað komi til greina: sem er rétt vegna einokunarlaganna..
Ísland eru á undan EU í fullkomnum Kommúnisma eða fasima. Hér allt handstýrt að ofan.
Júlíus Björnsson, 17.2.2010 kl. 02:17
Og þetta með handstýrða kommúnismann er rétt. Og meira en það. Þau stjórnvöld sem hafa stýrt(handstýrt) þessu samfélagi okkar um áratuga skeið hafa kennt sig til frjálshyggju og markaðshyggju. Þau hafa eytt mikilli orku í að básúna um heimsku kommúnismans og þess stjórnkerfis forsjárhyggju sem þar var innleitt og drap allt framtak úr fólki.
Þetta sama kerfi forsjárhyggju hafa markaðshyggjumenn svonefndir innleitt hér á Íslandi en vilja ekki kannast við það. Stór hluti kjósenda trúir þeim.
Í dag standa heimilisfeður undi húsveggjum og tuða skjálfandi: - Sky-yldi þeeessihi djööfuhuls ríhíkisstjórn ehekki fara að koooma meeeð eieinhvurt ááálveeer handa ookkuhur?
Árni Gunnarsson, 19.2.2010 kl. 18:03
Júlíus og Árni, það er bull að líkja þessu við kommúnisma, algjört bull.
Vésteinn Valgarðsson, 20.2.2010 kl. 14:08
Kommúnismi í orði og kommúnismi á borði hefur sannað sig oftast sem tvennt ólíkt.
USSR og Kína eru helstu módel framkvæmdar Kommúnismans sem ég á við.
Sem er algjört Bull á minn Íslenska mælikvarða.
Júlíus Björnsson, 20.2.2010 kl. 14:21
Módel schmódel, það sem hefur afsannað gildi sitt í USSR og Kína eru einræði og endurskoðunarstefna í átt til kapítalisma.
Vésteinn Valgarðsson, 22.2.2010 kl. 20:31
Einræði elítunnar virðist endalok allra isma í framkvæmd. Kjarnini er grunnur ávaxtanna: Íslenska fjöreggið.
Júlíus Björnsson, 22.2.2010 kl. 23:47
Kjarninn er grunnur ávaxtanna: Íslenska fjöreggið.
Júlíus Björnsson, 22.2.2010 kl. 23:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.