Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

Hann skilur ekki orsakir verðbólgu og gengisfalls.

 Gylfi Magnússon sagði að líta mætti svo á að verðtryggingin væri að hluta til sjúkdómseinkenni og að hluta til aðgerð til að draga úr áhrifum sjúkdómsins. Óstöðugt verðlag væri sjúkdómurinn og óstöðugt gengi krónunnar. Það væri ástæðan fyrir því að Ísland væri eina landið í þessum heimshluta með verðtryggingu í þetta langan tíma. 

Taldi ráðherra að fyrsta og mikilvægasta skrefið væri að taka betur á stjórn peningamála til að jafna óstöðugt verðlag og mynt. Þá væri von til að þess að umræðan yrði rólegri nótunum. 

En hver er orsökinn ? Sem bankamenn vilja ekki tala um.

 

Bankarnir sáu alveg um það en hann vill kenna krónunni um það. Burtu með þennann mann . Hann er skaðlegur framtíð okkar. Það er algjörlega 100 %. Það er búið að múta honum það er alveg ljóst. Ef einhver vill kynna sér raunverulegar orsakir gengisfalls....

 Orsökin er augljós.

http://this.is/villi/?page_id=691

 

Gylfi Magnússon er búinn að kaupa skýrslu hjá fjárfestingabanka til að nota í viðskiptaráðuneitinu til varnar verðtryggingu.  

Gylfi er einnig sá maður sem telur gengistryggð lán vera mál sem lántakendur eigi að bera.

Gylfi er einn af þeim sem telur að lögin skipti litlu máli í þessu samhengi.

 Ég segi það aftur burtu með þennann mann. Ekki láta hann komast upp með að afvegaleiða og ljúga. Eða tala bara hálfann sannleika. 

  Samfylkinguna burt strax. Eða aðra byltingu núna.  Þetta er ógeðslegt.

 


mbl.is „Yfirheyrsla yfir verðtryggingunni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvisvar sinnum meira en það kostar að leiðrétta allar skuldir heimilanna á ári.

Það hefur verið lenska íslenskra blaðamanna sem vinna við að lepja upp ummæli og útreikninga áróðursmeistara bankana. Þeir hafa ráðið sig í vinnu hjá Samfylkingunni og Vg virðist ekki hafa kjark til að fletta ofan af jafnvel þótt heil rannsóknarskýrsla sanni forsendubrest á þeirri stærðargráðu að undan honum verður ekki komist með neinum yfirlýsingum um hið gagnstæða.
Minir útrekningar benda til þess að árlegur kostnaður við leiðréttingarnar séu 3-7 miljarðar. Það er alger brandari að halda því fram að bankarnir geti ekki leiðrétt lánin. Það er glæpur að halda því framm að bankarnir geti ekki skilað þýfinu.

Ég veit ekki nákvæmlega hvar hnífurinn stendur í kúnni en ég er farinn að trúa því að við séum að glíma við landlæga fordóma.

Þeir eru á þennan veg... Þeir sem fóru óvarlega eiga að taka afleiðingunum af því.

Það eru þúsundir sem hugsa svona það eru tugir þúsunda sem halda að hagkerfið hafi farið á hliðina vegna þess hve almenningur spreðaði mikið. Eyddi um efni fram og svo framvegis. Og svo eru þeir sem tóku gengistryggt lán nú bara réttdræpir heimskingjar sem geta sjálfum sér um kennt að hafa verið plataðir svona illilega það hefið sérhver sæmilega vel gefinn maður átt að sjá að þetta fyrir að bankammenn mundu enn einu sinni rústa krónunni.

Við erum að fást við fordóma því svona segir ekki nokkur maður nema án þess að hafa kynnt sér málin tíl hlítar og það er einmitt skilgreiningin á fordómum að dæma eitthvað fyrirfram án þess að hafa kynnt sér það.

Ég er feginn hvað rannsóknarskýrslan verður víðlesin. Hún mun leysa upp mikið af þessum fordómum.


mbl.is Hagnaður Arion banka 12,8 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband