Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Verðtrygging er ávísun á áframhaldandi óstöðugleika.

Já það er eiginlega brandari að tala um stöðugleika þegar kerfið er hrunið og menn eru að reisa sömu vitleysuna upp aftur alveg eins og ekkert hafi í skorist.
Menn hljóta að vera alvarlega heilabilaðir ef þeir sjá ekki ranga hvatann og mórölsku hættuna sem bankamenn og ASI fellur í ár eftir ár.
Talsmenn sjóðana og seðlabanki drepa drepahagkerfið með ólöglegum og siðlausum gjörningum.
Verðtrygging og gengistryggð lán eru blóðsugur á hagkerfinu og kæfa það. Ef ríkisstjórnin gerir ekkert í þessum gjörningum munum við öll sökkva og það er sennilega það sem Samfylkingin vill. Enginn í þeirra hópi virðist hafa neinn vilja til að gera það sem þarf til að losa hagkerfið undan okinu. Þau hlusta vel á ráðleggingar ASI og hagkerfið kafnar.....ég óska eftir kjarki.


mbl.is Stöðugleikaumræðu að ljúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmið er í raun svona.

Þetta hús sem þú keyptir er Þjóðmynjasafnið sem við eigum öll saman en bankinn seldi þér þetta á uppsprengdu verði vegna þess að aðgangur var gerður framseljanlegur.

Kvóti sem er í almannaeign.

Þetta verður sársauafullt fyrir einhverja og sumir fá vonandi niðurfelldar skuldir vegna þess að uppsett verð var hvort eð er ólöglegt svikaplott sem bankar og fyrirtæki tóku þátt í.

Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að þessar skuldir séu færðar niður ef þær eru myndaðar við kvótakaup.

Þær verði þá færðar niður sem svarar kaupverði þess kvóta sem fyrnist. Og í raun kaupi ríki kvótann aftur í gegnum skuldaaflausn.

Nú byrjar einhver kröfuhafinn að emja og Pétur Blöndal stendur upp á þingi og segir þetta er árás á fjármagnseigendur sem spara og leggja fyrir og eru góðir þegnar, skuldarar eru vondir. Þeir tóku of há lán. Þeir meiga brenna en ég og mínir vinir verða að fá sitt með ölllum mögulegum blóðugum ráðum.

Og Gylfi segir there is no such thing as a free lunch.


mbl.is „Eigandinn heldur áfram að borga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir sem missa fókus tapa leiknum.

Á tímum sem þesum er réttur fókus algjört lykilatrið.

Samfylking er flokkur sem er alltaf að skipta um umræðuefni í miðri setningu, þegar núverandi brennandi aðgerðir eru nauðsynlegar.Ef samfylking er beðin um lausn á vandamáli. Þá bendir hún á ESB og evruna.

Verðtrygging fer þegar evran kemur.Laun hækka þegar evran kemur.Vextir lækka þegar evran kemur.Vextir eru háir út af krónuni.

Allt tóm þvæla rökleysa og lygi.

Þetta er nær sannleikanum.Verðtrygging er enn að sökva krónunni.Laun hækka þegar skuldir og vaxtastig lækkar.Vextir læka þegar öguð útlán verða að veruleika og peningastjórn tekin alvarlega.Vextir eru meðal annastr háir vegna slæmrar útlánastefnu bankana og verðtryggingar.Evran kemur þessu ekkert við. Hvernig væri að halda fókus og laga þetta fyrst.


mbl.is Framsóknarmenn vilja leiðrétta mistök viðskiptaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrælahaldarar dauðans.

Hverjir eru kröfuhafarnir ? Hverjir eru þrælahaldararnir ? Hver starfar fyrir þá.

Allir þeir kröfuhafar eða þeir sem halda uppi máli kröfuhafa um gengistryggð lán eru þrælahaldarar og eru óvinir Íslendinga. Varðhundar samninga sem sjúga arðinn úr hagkerfinu.

Og óvinir þjóðarinnar. Nútíma þrælahald í boði bankana. Í boði viðskiptaráðherra. Í boði seðlabanka. Í boði IMF í boði kröfuhafa.  Við eigum að vera glöð og borga tvöfalt á kröfuhafa galeiðunni og skera niður þjónustu til að borga kröfuhöfum ólöglega samninga. Viðbjóðslegt. Miskunnarlaust. 

Nei sögðu Ísraelsmenn í ánauð hjá Faraó og nei segjum við. Eða deyjum bleiður.

Hvað fékkstu mikið í vasann fyrir það að svíkja almenning ?

 La mordida

Eða ertu bara svona eðlislega fjármagnshollur ?

Eða heldur þú að þú sért í vinnunnin hjá kröfuhöfum. Ég véfengi allann þinn málflutning sem setur fé ofar fólki. Gengistryggð lán eru ólögleg og verður að snúa yfir í krónur frá lántökudegi. Vegna hagkerfissins og vegna fólksins og sveitafélaganna. Ef kröfuhafar fara ekki að slaka á kröfum sínum munu þeir kafna vegna eigin græðgi. Og fella kerfið sjálfir alveg hjálparlaust.

Mafiocracy.... 

 


mbl.is Ríkisbankarnir reknir með tapi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of fljótt að skipta um rúðurnar ?


Eru þessir nýkjörnu þingmenn að fara að vinna fyrir fólkið eða eru þau að fara að fresta því sem er búið að fresta of lengi.
Þið hafið ekki mjög langann tíma til að standa ykkur.

mbl.is Skipt um rúður í þinghúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vita allir hvað ESB er ?

Það er stríð í gangi sem alþingismenn gera sér enga grein fyrir að er háð um landið okkar.

Það er hugmyndafræðilegt stríð gegn hagfræðihugtakinu þjóð. Miklir fjármunir eru notaðir til þess að boða hugmyndafræðina sem miðar að því að sameina Evrópu í eitt markaðssvæði fríverslunnar. 

Hugtakið þjóð passar ekki inn í framtýðarsýn corprocotive Europa. With a SAFE army. 

It is a far reaching plan. 

Wake up you to the facts. 


mbl.is Sigmundur Davíð: Kom mjög á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olli Rehn er bjáni og ESB er þvæla.

Hvað skiptir það okkur máli þó að þessir Jólasveinar séu að gaspra þetta...hafa íslendingar ekki sjálfstæða hugsun lengur.
mbl.is Hver veit nema ESB-umsókn frá Íslandi örvi Norðmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagkerfi Íslands þrælar fyrir fjármagnseigendur.


Í gegnum verðtryggingu og gengistryggð lán er búið að selja hluta þjóðarinnar í ánauð og hinn partur þjóðarinnar kennir þeim um óráðsýu og ábyrgðaleisi.

Þegar gengistryggð lán eru veitt inn í annað hagkerfi og krónan svo felld er verið að láta þann sem tók þessi lán þar á meðal sveita félög , borgarar, húseigendur, bílaeigendur.Þræla fyrir gengismun. Hagkerfi Íslands borgar enn hærri rentu. Við erum leiksoppar fjármagnsafla. Þjóðin þrælar fyrir fjármagnið.
Ef við ætlum að vera þjóð áfam verðum við að afneita því sem sýgur úr okkur þróttin.
Og svo nefni ég verðtrygginguna. Verðtryggð húsnæðisskuldabréf eru seld til fjárfesta. Sem afurð sem er hægt að auðgast verulaga á vegna þess að verðtrygging er tengd neysluvísitölu.

Á tvennan hátt er búið að selja okkur á galeiðu.
Og á tvennan hátt er gengi krónunnar haldið niðri.
Það fer saman að berjast fyrir krónunni og að berjast fyrir frelsi.
Það sem við verðum að gera er að afneita þessum gjörningum sem flækja krónuna og okkur í þrældóm.
Með því að horfa á evruna sem lausn á vandanum erum við að horfa fram hjá raunverulegu þrælahöldurunum sem eru mögulega nærri en okkur grunar.
Hverjir eru kröfuhafar gengisstryggðu og verðtryggðu lánana ?


Ástarkveðjur til Jóhönnu og co.

Þetta er yndislegt lag.

Frábær frammistaða og bakraddir og mússikantar eru æðislegir.

Ég er mjög spenntur og syng með allan daginn.

Þið voruð mögnuð. Við fylgjumst með og sendum ykkur kraft.

Maður getur ekki annað en elskað ykkur.

Þið eruð frábær, og við erum frábær.

 

 

 

 


mbl.is Mikil ánægja með úrslitin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég á mér eina ósk.


Að evran sökkvi og Samfylkingin hætti þessu evruröfli.

mbl.is Hugsanlegt hrun evrunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband