Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Ég býð mig líka fram. http://this.is/villi

Stjórnvaldsleg mistök hafa átt sér stað í hagkerfinu. Verðbólgu hefur ekki verið haldið í skefjum. Útlán hafa verið of mikil og verðris, verðbólga hlaupið sem skaðvaldur um samfélagið. Óábyrg útlánastefna er orsökin. Yfirstjórn fjármálakerfis og fjármálastofnanir brugðust. Nú ber þeim að bera skaðann möglunnarlaust.

Í þriðju Mósebók 15 kafla stendur að sjöunda hvert ár skalt þú veita umlíðun skulda. Nú hefur ekki þótt flott í Íslensku samfélagi að vita hvað stendur í biblíunni eða nota hana sem leiðbeiningar en það mun kannski breytast þegar við sjáum að biblían er líka hagfræðirit. En þeirri umlíðun er svo farið: Sérhver lánardrottinn skal veita umlíðun á því, sem hann hefir lánað náunga sínum. Hann skal eigi ganga hart að náunga sínum og bróður, því að umlíðun hefir boðuð verið Drottni til dýrðar.

Já það er spurning hvort stjórnmálamenn og þeir sem reikna út eignir bankana beri gæfu til að fara eftir orði Guðs okkur öllum til gæfu eða hvort menn vilja þrjóskast við að fara eiginhagsmuna leiðina sem er í raun leið mammons til að leggja þjóðir í þrældóm. Eða breytum við Guði til dýrðar.

 

Þó að Framsóknarflokkurinn hafi mælt með 90% húsnæðislánum sem er orsök vanda okkar kemur hann með tillögur sem eru raunveruleg leið út úr vandanum og ber að taka alvarlega. Skoða vel og móta.

Það er svo alger nauðsyn fyrir framtíðina að verðtrygging verði afnumin. Annars lendum við aftur í sama vanda mjög fljótt.

Það er komið fagnaðarár í huga Guðs og það ber að virða annars fer eins fyrir okkur og Bandaríska hagkerfinu.

Það er tími núna til að gera þær breytingar sem er lengi búið að fresta. Fagnaðarár í þriðju mósebók. Látið sem flesta bankamenn lesa þetta. Og fjármagnseigendur. http://www3.hi.is/cgi-bin/biblia?ritn=3M+25&ord=


mbl.is Ingibjörg býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eina leiðin út úr vanda hagkerfis. http://this.is/villi

Ég er sammála rektor um að nýsköpun sé nauðsynleg fyrir hagkerfið. En vandinn sem steðjar að í núinu verður ekki leystur með nýsköpun. Það þarf róttækari breytingar.

Stjórnvaldsleg mistök hafa átt sér stað í hagkerfinu. Verðbólgu hefur ekki verið haldið í skefjum. Útlán hafa verið of mikil og verðris, verðbólga hlaupið sem skaðvaldur um samfélagið. Óábyrg útlánastefna er orsökin. Yfirstjórn fjármálakerfis og fjármálastofnanir brugðust. Nú ber þeim að bera skaðann möglunnarlaust. 

Í þriðju Mósebók 15 kafla stendur að sjöunda hvert ár skalt þú veita umlíðun skulda. Nú hefur ekki þótt flott í Íslensku samfélagi að vita hvað stendur í biblíunni eða nota hana sem leiðbeiningar en það mun kannski breytast þegar við sjáum að biblían er líka hagfræðirit.

En þeirri umlíðun er svo farið: Sérhver lánardrottinn skal veita umlíðun á því, sem hann hefir lánað náunga sínum. Hann skal eigi ganga hart að náunga sínum og bróður, því að umlíðun hefir boðuð verið Drottni til dýrðar.

Já það er spurning hvort stjórnmálamenn og þeir sem reikna út eignir bankana beri gæfu til að fara eftir orði Guðs okkur öllum til gæfu eða hvort menn vilja þrjóskast við að fara eiginhagsmuna leiðina sem er í raun leið mammons til að leggja þjóðir í þrældóm. Eða breytum við Guði til dýrðar.

 

Þó að Framsóknarflokkurinn hafi mælt með 90% húsnæðislánum sem er orsök vanda okkar kemur hann með tillögur sem eru raunveruleg leið út úr vandanum sem eru að hluta til réttar. Það er svo alger nauðsyn fyrir framtíðina að verðtrygging verði afnumin. Annars lendum við aftur í sama vanda mjög fljótt.

Það er komið fagnaðarár í huga Guðs og það ber að virða að öllu leit annars fer eins fyrir okkur og Bandaríska hagkerfinu.

Það er tími núna til að gera þær breytingar sem er lengi búið að fresta. 

 Fagnaðarár í þriðju mósebók.  Látið sem flesta bankamenn lesa þetta. Og fjármagnseigendur.

 http://www3.hi.is/cgi-bin/biblia?ritn=3M+25&ord=


mbl.is Leiðir út úr vandanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gulldrengurinn í forvali fyrir VG. http://this.is/villi

Ég vil leiða fyrir því rök að við ættum alls ekki að hugsa meira um evruna, heldur horfa lengra fram á vegin.  "2500 ára peningasaga veraldar segir okkur að ókjölfestir gjaldmiðlar lifa ekki nema skammann tíma, og þá er ég að tala um 25-40 ár. Gulltryggð mint og gullslegin mint heldur verðgildi sínu jafnvel í hundruðir ára.

Er það ekki ástæða þess að saga er numin í skólum, að við getum dregið lærdóm af henni ?

Evran er ekki kjölfestur gjaldmiðill. Evran er enn ein tilraunin sem mun mistakast. Og ég er ekki að segja þetta út í loftið. Þetta eru staðreyndir. Látum ekki fallegar umbúðir ESB leiða okkur frá kjarna málsinns. Um leið og við gefum frá okkur fjárhagslegt vald okkar erum við búin að glata vissum mannréttindum. Stjórnmálamenn og bankar geta ráðið örlögum okkar. Þetta þarf ekki að vera svona og við getum mótað miklu heilbrigðara samfélag sem minkar vald stjórnmálamanna og banka og eykur vald borgaranna. Sem aftur eykur vald og virkni lýðræðissinns til muna.

Það er sama hvað forsætisráðherra Svíþjóðar segir um evruna það afsannar ekki það að ókjölfestir gjaldmiðlar eru verðbólguháðir og lifa stuttu og sveiflóttu lífi. Svíarnir báru ekki gæfu til að standa utan við Evrusvæðið eins og Sviss sem skilur kjölfestu og gerir sér grein fyrir valdi gulls. Svissneski seðlabankinn á hlutfallslega stórann gullforða. Við eigum 1.8 tonn og gullið er geymt í Englandi.

Það er eitt stórt samsæri í gangi og það er það að það er búið að selja heimsbyggðinni þá lygi að dollarinn sé gull og gull sé verðlaust. 

Ég hringdi í sðlabankastjórann Eirík í desember og sagði honum að kaupa eins mikið gull og hann gæti.

Honum fannst gaman að ég skildi hringja en síðan þá hefur gull hækkað um 200 dollara únsan ef hann hefði keypt gull fyrir 10 miljarða ættum við nú tæpa 12.  Ég er að bjóða mig fram með það í huga vekja fólk til meðvitundar um það hvað við getum gert ef það er samfélagslegur vilji fyrir hendi. Seðlabanka gæti verið skyldaður til að verja föstum hluta á ári til gullsöfnunnar. Eftir þó nokkur ár gætum við skipt um kerfi og búið í verðbólgulausu samfélagi. Þetta væri eitthvað til að vinna fyrir er það ekki. Og eitthvað til að hlakka til.

 

this.is/villi hér er að finna nánar útskýringar á framtíðarsýn.


mbl.is Staðfestir rökin fyrir evrunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Ísland. Ég í forval hjá VG. http://this.is/villi/

Til hamingju allir þeir sem fóru fram á tiltekt í efstu stjórn peningamála. Það er magnað að sjá hve lítið þarf til að Íslendingar hlaupi í lið með þeim öflum sem hafa mótað fjármálakerfi sem hefur hrunið, skaðað borgara þessa lands, atvinnuvegi og orðspor okkar meðal þjóða. Það þurfti ekki nema eitt viðtal við sjálfmiðaðann fyrrum foringja til þess að stór hluti þjóðarinnar væri til í að kaupa rök hanns og afsakannir. Hann setti sig í fórnarlambssætið og fékk samúð margra. Skekkti umræðuna um sinn og lék leik sem borgarar þessa lands eru orðnir langþreyttir á. En margir féllu fyrir leikþættinum. Margir eru enn múlbundnir og vilja trúa Davíð sínum. Þetta segir mér hvað Íslendingar eru viðkvæmir fyrir því að það sé logið að þeim. Við erum auðtrúa og við viljum treysta þeim sem leiða okkur. Þetta er auðvitað viss galli og er varhugaverður. Við skulum vera betur vakandi. Það er nauðsynlegt að borgarar séu meira meðvitaðir. En hvar finnum við stjórnmálamenn sem eru traustsins verðir. Og hvernig er hægt að treysta því að þeir spillist ekki af valdi því sem er sett í hendur þeirra. Því er vandsvarað en ég tel mig vera einn af þeim sem sækjast ekki eftir völdum heldur einungis því að hafa áhrif til góðs og að standa gegn því sem er til tjóns fyrir borgara þessa lands. Sem er rotið kerfi. Nú hef ég ákveðið að fara í prófkjör hjá VG vegna þess að þau mál sem ég vil varpa ljósi á eru lítið rædd, en eru að mínu mati mjög dýrmætt innlegg í þá umræðu sem fer nú fram í uppbyggingu og endurreisn hagkerfis Íslands. Það er krafa um endurnýjun í stjórnmálum og það er talað um mentun og fagmennsku. Ég vil bera fram byltingarkendar hugmyndir sem umbylta öllu fjármálakerfi og leysa flest þau hagkerfismein sem valda borgurum þessa lands sem mestu fjörtjóni til langframa. Framtíðarsýn. Þessi framtíðarsýn er ekki kennd í skólum þessa lands og hagfræðin sem hún byggir á er ekki kennd í Háskóla Íslands að mér vitandi. Skoðið stefnumál mín og leggið þeim lið ef áhugi ykkar vaknar til þess.

http://this.is/villi/


mbl.is Seðlabankafrumvarpið samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

J.P. Morgan og Evrópusambandið.

Þetta er eins og að bíða eftir Drakúla og Frankenstein, svo þeir fái að vita hvar við búum um brúðina . ? ? ?
En ég var svo sem ekki þarna til að hlusta á rök með þessu. Þetta hljómar undarlega fyrir mér.
mbl.is Vilja fresta seðlabankaumræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna ætli það sé ?

Er það vegna þess að almenningur er svo eyðsluglaður ?

Nei það er undannfarinni útlánastefnu að kenna.

 Áskorun til þingheims.


Nú þegar endurreisn stendur yfir á viðskiptabönkum þeim sem með útlánastefnu sinni sökktu Íslensku hagkerfi, er vert að hafa ljóslifandi í huga að útlánastefna á Íslandi hefur alla tíð valdið verðbólgu og kaupmáttarskerðingu, þenslu og offjárfestingum.
Nú hafa tvær kynslóðir Íslendinga lifað gegnum tíma mikils fjármálaóstöðugleika.
Og enn virðumst við standa ráðþrota og vanmáttug gegn vá sem enginn virðist hafa kjark og þor til að halda í skefjum. Verðbólga er orðinn sjálfsagður djöfull á öllum heimilum. Og hefur verið hagfræðilega samþykktur. Svo karpa menn um fyrri ákvarðannir og stríða gegn hagkerfi Íslands með óábyrgum gæluverkefnum sem fara langt framm úr fjárlögum.
Þessu verður að linna. Við verðum að huga að hlutföllum í hagkerfinu, nýsköpun, atvinnuvegum landsinns og framleiðslu.
Ekki er það þó neinn vandi að halda verðbólgu í skefjum hagfræðilega séð. Það er auðveldlega hægt að fylgjast betur með upphæðum útlána hjá öllum bönkum á Íslandi. Seðlabanki og fjármálaeftirlit hafa það hlutverk að halda verðbólgumarkmiðum.
Það hefur verið gert með því að beita stýrivöxtum. Er sú tilraun ekki á enda ? Hefur hún ekki sannað skekkju sína.
Flotgengi til að laða að erlent fjármagn ? Hefur það ekki sannað skekkju sína ?
Til framtíðar getum við ekki lifað á erlendu lánsfjármagni. Við verðum að skapa verðmæti á íslandi til að geta eflt hagkerfið.
Stjórnvöld og bankar hafa ekki getað tekið ábyrgð á þenslu og verðbólgu um áratugi. Semsagt þeir hafa ekki tekið ábyrgð á ákvörðunum sínum. Enda styðja kenningar Miltons Friedmann alla þá tilburði til að leysa vandamál með innspítingu peninga.
Og síðan Ólafslögin voru sett í gildi hefur lántakandinn tekið þá ábyrgð á sig. Ekkert er samt verra fyrir útlánastofnanir á Íslandi en þetta fyrirkomulag. Ekkert er samt verra fyrir Íslenskt samfélag en þetta fyrirkomulag. Ekkert er mikilvægara fyrir þroska íslenskra banka en afnám Ólafslaga.
Íslendingar hafa undanfarin ár verið að fást við afleiðingar en ekki ráðist að orsök vandans.
Meðvitund hefur glatast og útlánastefna valdið ómældu tjóni á verðmætavitund Íslendinga. Hún hefur skapað svo mikla þenslu að fasteignaverð hefur risið uppfyrir það sem kaup getur staðið undir. Þetta er klassísk afleiðing of mikilla útlána. Þetta verður einfaldlega að leiðrétta. Hagfræðileg rök með því að færa niður höfuðstól sem nemur ofþenslu eru gríðarleg. 
Á undanförnum áratugum hefur sparnaður fallið í skuggann af auðfengnu lánsfé.
Það væri glapræði aðendurreisa bankana með sama lagaramma til að vinna eftir.
Nógu fallvalt er kerfi byggt á kjölfestulausum gjaldmiðil. En ef bankar þurfa ekki að gæta þess að vanhugsuð útlán þeirra hafi slæm áhrif á afkomu þeirra, eru þeir settir í tvöfalda móralska hættu og þar að auki munu þeir aldrei þroskast sem eðlilegar og aðhaldsamar útlánastofnanir. Hvort sem þeir eru í eigu ríkis eða einkaeigu.
Þeir bankamenn og stjórnmálamenn sem sjá aðeins þá hlið peninginns sem snýr að tryggingu gegn tapi innistæðna í verðbólgu eða útlánatapi eru algjörlega búinn að missa sjónar á orsök verðbólgu og vill þá innleiða óábyrga útlánastefnu í þeim tilgangi að tryggja innistæðueigendur. Sem það gerir auðvitað ekki. Því kaupmáttarskerðing veldur meira tapi en sem nemur verðtryggingunni.
Því miður virðist vera viss blinda á þessi grundvallarrök. Og virkar þetta sem bleyja fyrir bankana og Alþingi.
Ég skora á hvern þann þingmann sem les þetta að sjá hag Íslensks samfélags í stóru samhengi.
Það er áhrifamesta og skilvirkasta leiðin til endurreisnar að læra af sögunni og gera ekki sömu mistökin aftur og aftur.
Það er vart mikilvægara mál til í Íslensku samfélagi.
Nú á að reisa upp banka með eginfé úr vasa skattborgara. Sú fjármögnun er fundin með skattheimtu og einnig hefur hún áhrif á  magn peninga í umferð og hefur þessvegna þensluáhrif þó að ekki sé um ofþenslu að ræða, þá hefur það áhrif á höfuðstól lána í gegnum verðtryginguna.
Enn bera skuldarar byrgðarnar. Heimili og fyrirtæki sem skulda verðtryggð lán.
Í fimm mánuði hef ég skoðað þessa hluti frá öllum hliðum og lesið ummæli færustu hagfræðinga og verkalýðsforkólfa og stjórnmálamanna. Enginn hefur komið með rök fylgjandi verðtryggingu sem halda vatni. Ég er búinn að lesa nýjustu skýrslu seðlabanka og þar koma engin rök með verðtryggingu.
Ef útlán banka eru innan eðlilegra marka og innstreymi erlends lánsfés er heft, er ekkert mál að halda verðbólgu í skefjum.
Með opnum gagnagrunni í seðlabanka mundu allir verðbólguáhrifavaldar vera auðveldlega skýrðir á lituðu súluriti. Öll útlán banka mundu koma þar til áhrifa allur yfirdráttur og allir þættir til mótvægis.
Það hefur ekki verið gerð krafa á heila hagstjórn í áratugi á Íslandi og menn tala orðið í hringi og vaða reyk í þessum efnum.
Svo segja flestir þingmenn og hagfræðingar í fréttum að krónan sé ónýt. Hún er smá en hagstjórn og yfirlæti bankana var of stór fyrir hana. Það er sannara. 
Nú er komin upp sú staða að ef við viljum að hjól hagkerfissinns snúist eðlilega. Verðum við að skilja að sú þensla á fasteignaverði sem hefur orðið uppfyrir það sem tekjur bera verður að sjatna til að jafnvægi náist. Eðlilegast er aðhöfuðstólar lána falli með fasteingaverði. Þá er markaðurinn fljótastur á ná jafnvægi. Verðið fellur hvort sem við gerum það viljug eða seinna við enn meiri vandræði. Hrakið og svívirt fólk á götum borgarinnar í boði bankana. Þetta þurfum við ekki að búa við.
Sama á við um flotgengisstefnuna og kjölfestulausa gjaldmiðilinn. Við höfum tækifæri núna til að móta stefnu til frambúðar.
Verðtrygging er í raun mannréttindabrot og lögsettar ofsóknir gegn skuldurum í árferði sem þessu og árferðið er að miklu leiti tilkomið af verðtryggingunni.


Leiðrétting á fasteignabólu.

Fasteignabólur og aðrar bólur í hagkerfum eru skaðlegar og það er áhrifaríkasta leiðin fyrir hagkerfið til að jafna sig, að hleypa af bólunum á einhvern hátt. Í stað þess að setja stóran hóp fólks á vergang. Leiðréttingin á sér stað á einhvern hátt hvort eð er.
Þess má geta að fasteignabólur verða ekki til vegna þess að fólk er með óráðsíu. Fasteignabólur verða til við óheft útlán. Sem er hagstjórnaratriði.
Skilgreining á mannamáli um hvað fasteignabóla er, er svohljóðandi. Fasteignabóla verður til þegar fasteignaverð rís uppfyrir það sem tekjur geta borið. Þetta er orsök þenslu og verðbólgu sökum óábyrgrar útlánastefnu bankana en ekki brjálsemi almennings. Langvarandi áhrif verðbólgu á söfnun og sparnað er neikvæður. Og er afleiðing útlánastefnu og peningamálastefnu ekki öfugt.
Leiðrétting á höfustól lána er því eitt það snjallasta sem hægt er að gera í stöðunni. Og er óumflýjanleg. Fasteignaverð lækkar á einn eða annan hátt hvort eð er. En kostnaður samfélagsinns verður auðvitað mikið meiri ef ekkert er gert.

mbl.is Vilja meira jafnræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú kemur kjarninn upp á yfirborðið

Hernaðarlegur bandamaður ? Gegn hverjum. Okkur sjálfum ? Hvað ber að óttast ? Konur með riffla. Og evrópuplott.
Hrikaleg hugmynd.
Og svo fáum við hugsanlega undanþágu frá sjávarútvegsstefnu. Og svo fá þeir rafmagnið okkar og þeir setja okkur svo í herinn og innleiða vopnavitund og ótta gegn öllum hinum. Heirðu vinan nei takk. Ég vil ekki neitt náið samband við þig. .

P.S vegna lélegrar þýðingar á ensku hjá fréttamanni dæmist þetta blogg ógilt.

Evrópuafstaða mín er þó vel ígrunduð og aðalega bygð á afstöðu minni gegn evrunni sem mint fyrir Ísland sem er eitt það stæsta rán sem sett hefur verið upp ganvart borgurum evrópu fyrr og síðar.


mbl.is Vill Ísland í Evrópusambandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki mynd af lýsispillum.

Olía er í eðli sínu ekki vítamín og ber ekki að rugla saman.
Lýsi er unnið úr hrárri lifur og hefur allt aðra efnaupptöku í líkamanum en vítamín.
Langtíma ransóknir á lýsi hafa verið gerðar á Íslandi og annrstaðar sem hefur ekki verið hnekkt.

mbl.is Fjölvítamínataka gagnslaus?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkuð góð hugmynd.


Nokkuð góð hugmynd að flokkar geti boðið fram á mismunandi hátt þá fengi sá flokkur vonandi mest fylgi sem væri með lýðræðislegustu aðferðina og mundi hvetja flokkana til umbóta í kosningaferlinu.
mbl.is Von á frumvarpi um kosningalög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband