Hræðsluáróður.

  Nú á að hræða landann.

 

"Daginn eftir birtist hugmyndin um orku- og kolefnisskatta í fjárlagafrumvarpi fjármálaráðherra. Þá ákváðu eigendur álversins að halda að sér höndunum og hafast ekkert frekar að."

  Já einmitt héldu að sér höndum við hvað.

Látið ekki blekkjast af áróðri um erlent fjármagn og yndisleika þess.

Á meðan þeir mala gull koma þeir einfaldlega að samningaborðinu.

Rétt á meðan tölurnar koma fram hinkra þeir. Ekkert vesen....þetta verður að gerast.

Auðlindaskattar eða arðleiga eru miklu stærra réttlætismál en það að við óttumst viðbrögð Rio Tinto.

Allir saman nú. Breytum Íslandi saman það verður gaman.

  


mbl.is Rio Tinto Alcan hættir við í S-Afríku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Sko - þ.s. ég vil taka upp, er kolefnis-skattur.

Því má þó ekki rugla saman við auðlindaskattlagningu.

En, tilgangur kolefnis skattlagningar, er að búa til hvata fyrir einstaklinga og fyrirtæki, til að nota minna kolefni.

Tilgangur auðlinda skattlagningar, er allt annar, og þarf að hugsa með varfærni. Sem dæmi, ef allar auðlindir hérlendis eru skattlagðar, t.d. vatn og rafmagn, þá er það líklegt að valda bæði almenningi auknum kostnaði í formi hækkunar hitunarkostnaðar og einnig hækkunar rafmagnsverðs.

Ég vil frekar, taka upp kolefnis-skatt, en auðlindaskatt. 

Sá skattur, hækkar ekki hita og rafmagns-reikninga, almennings.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 16.10.2009 kl. 23:44

2 Smámynd: Vilhjálmur Árnason

Sko Einar.... það sem ég vil, er að gera þessi umskipti ..frá tekjuskatti til leigu í formi skatts aulindagjald...með tímanum...tilgangur auðlindaskattlagningar er frábær....hann stuðlar að jöfnuði hann er hagvaxtar hvetjandi ...hann á að taka við af tekjuskatti með tímanum.

Minkandi tekjuskattur aukin auðlindaleiga.

Auðvitað á að gera þetta meðvarfærni.

Vilhjálmur Árnason, 17.10.2009 kl. 02:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband