Síðasti þjóðhátíðardagurinn.

Samfylkingin er á leiðinni með okkur inní ESB þar sem falskir vindar blása. Þar munu þjóðfánar ekki blakta og lýðræðisljóð ekki vera sungin. Þar ráða hákarlarnir og elítan. Og ef þú heldur að þu sért elíta þá ertu að misskylja orðið. Það er enginn á Íslandi í elítunni, það eru bara óskhyggju elítur á Íslandi. Og hákarlarnir verða aldrei saddir, þeir stóru munu éta þá minni og fella fyrir auð og völd. Þú munt mögulega hagnast í smá stund sem vinur elítunnar og svo rotnar þú að innan eins og ESB sjálft.

 


mbl.is Heyjum á ný sjálfstæðisbaráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Afleiðingarnar fyrir atvinnulífið og heimilin í landinu þekkja allir... Ágirnd villti okkur sýn um stund og olli blindri trú á meinta snilli okkar í að kaupa og selja verðbréf og eignir víða um heim. Við gengum of hratt fram og við gengum fram af mörgum okkar mestu og bestu vinaþjóðum. Við verðum að endurvinna traust þeirra og virðingu og ég hef þá trú að okkur sé að takast það," sagði Jóhanna.

Segir Jóhanna sannarlega með réttu fyrir hönd Samfo og styrktaraðila.

Við 65% sem nauðug viljug horfðum upp á og vildum fram á síðasta dag ekki trúa þessu: Landráðsstarfsemi [glannaskap, óráðsíu].  Getum tekið undir sérhvert orð Jóhönnu.  Sennilega stórhluti Samfo líka sem vissi ekki betur að telur fals lánin vera góðæri. Góðæri sem mælist ekki á skattaskýrslum  90% Íslendinga.  TV sýndar góðæri?

Júlíus Björnsson, 18.6.2009 kl. 02:45

2 Smámynd: Haraldur Baldursson

Enn eru leikir á borðinu....það þarf hins vegar færan skákmann til að finna sjá þá leiki. Enn hafa þau Jóhanna og Steingrímur ekki fundið þá leiki. Miðað við viðsnúning Steingríms, er hætt við að Samfylkingin fái enn ráðið full miklu. Ég óttast að það þurfi að raða spilum að nýju, en þá án Samfylkingar. Ég held að xV+xO+xD+xB sé það sem taka þurfi við. Þetta yrði ekki Þjóðstjórn, en þá alla vega þjóðholl stjórn. ESB blinda xS útilokar frekari stjórnarþáttöku þeirra í bili.

Haraldur Baldursson, 18.6.2009 kl. 09:51

3 Smámynd: Sigurbjörn Svavarsson

ESB aðild er fyrir forystu Samfylkingarinnar leið inní elítuklúbb skoðanasystkina. Komin ínní Stórelítu Alþjóðlegra Sósíalista.

Alþjóðahyggja sósíalista er skýringin á vilja Samfylkingarinnar til að ganga inní ESB, (ásamt innbyggðu ósjálfstæði í stefnumálum) þrátt fyrir að það sem þeir hafa gagnrýnt mest undanfarið, -nýfrjálshyggjuna, er einmitt það sem ræður ríkjum í ESB. 

Sigurbjörn Svavarsson, 18.6.2009 kl. 10:44

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Evrópu samfélagið með sína Evrópsku elítu kynþætti. Kalla sig alþjóðasamfélagið ennþá þrátt fyrir allt sem undan er gengið. 

Júlíus Björnsson, 18.6.2009 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband